Skírnir - 01.01.1956, Síða 292
II
Skýrslur og reikningar
Skirnir
2. Þá las forseti upp ársreikning og efnahagsreikning félagsins. Voru
þeir endurskoðaðir af öðrum endurskoðanda félagsins, Brynjólfi Stefáns-
syni, framkvæmdastjóra. Voru reikningarnir samþykktir með öllum at-
kvæðum.
Enn fremur las forseti upp reikning yfir sjóð Margrethe Lehmann-
Filhé’s og reikning Afmælissjóðs félagsins. Höfðu þeir einnig verið endur-
skoðaðir á sama hátt.
3. Forseti skýrði því næst frá stjórnarkjöri: Forseti var kjörinn Matthías
Þórðarson, með 187 atkvæðum, varaforseti Einar Ólafur Sveinsson, með
183 atkvæðum, og fulltrúar þeir Steingrimur J. Þorsteinsson, með 177 at
kvæðum, og Einar Ólafur Sveinsson, með 160 atkvæðum.
4. Þá voru kosnir endurskoðendur, þeir Brynjólfur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri, og Einar Bjarnason, aðalendurskoðandi ríkisins.
5. Því næst var kjörinn heiðursfélagi í félaginu, prófessor, dr. phil. A.
Lodewyckx í Melbourne.
6. Forseti skýrði síðan frá störfum félagsins á hinu umliðna ári. Sakir
mikils annríkis hafði enn tafizt prentun árbókanna og útsending þeirra til
félagsmanna. Gefið hafði verið út 3. hefti I. bindis 2. flokks af Safni til
sögu íslands, Chorographica Islandica eftir Árna Magnússon, og l.hefti
V. bindis Annála 1400—1800. Enn fremur Skírnir, 129. árg., og 4. hefti
XVI. bindis af Fornbréfasafninu.
Þá gat forseti þess, að á yfirstandandi ári yrði gefið út 4. hefti I. bindis
2. flokks af Safni til sögu Islands, 2. hefti V. bindis annálanna, Skírnir og
5. hefti af XVI. bindi Fornbréfasafnsins.
7. Forseti skýrði því næst frá, hvað liði prentun árbókanna og útgáfu-
starfsemi félagsins að öðru leyti. Urðu nokkrar umræður um ]>að mál, og
að þeim loknum var fundargjörðin lesin upp og samþykkt. Siðan var
fundi þessum slitið.
Pétur Sigurfisson.
Alexander Jóhannesson.