Skírnir - 01.09.1998, Page 63
SKÍRNIR ÁGRIP AF KRISTNUM HJÓNABANDSSKILNINGI
333
kristninnar sem sjálfsögðum hlut sem allir þekktu, heldur bar
kirkjunnar mönnum að sinna þeim og minna sérstaklega á þau.
Jón Vídalín
I Vídalínspostillu leggur Jón út af brúðkaupinu í Kana í öðrum
kafla Jóhannesarguðspjalls (Jh 2.1-11) og þegar í upphafi prédik-
unarinnar kemur fram áherslan á að „ektaskapurinn er af Guði
stiftaður til að fjölga mannkyninu í heiminum. Það bauð Guð frá
öndvörðu er hann sagði: Vaxið og margfaldist.“ Jón tengdi þetta
sköpunarmarkmið við endurlausnarstarf Krists og kirkjuna.
„Hann hefur með heilögu Guðs orði ótal barna við henni getið,
hvör nú standa umhverfis hans borð.“61 Þar með skeytir Jón sam-
an hjónabandinu sem stofnun og sköpun Guðs við orð hans í
Kristi.
Nærvera Jesú, lærisveinanna og Maríu í brúðkaupinu bendir
til þess að hér sé skynsamt og guðhrætt fólk á ferð. Af því dró
Jón þá ályktun að áður en stofnað væri til hjúskapar bæri að leita
ráða hjá þeim sem þau gætu veitt:
[Það er] af þessu að læra að menn taki guðhrædda menn til ráðuneytis
með sér þegar slíkt á að byrja [þ.e. hjúskap] en ekki hlaupa til slíkra efna
fyrir ráð fram. Eigi heldur hlýðist fortölur þeirra er annaðhvört sjálfir
ekki vita fótum sínum forráð eða fyrir eigin gagnsmuna sakir steypa ein-
um óreyndum og fátækum í þá gryfju sem hann má ævinlega gista.62
Jón taldi síðan upp atriði sem fólk hugar að þegar stofnað er til
hjúskapar: fjármuni, ætterni, fegurð, og það að svala hvötum sín-
um. Hann vísaði loks þann veg sem hann taldi mönnum réttast að
feta í þeim efnum.
Jón benti á að vissulega væri traustur fjárhagur mjög af hinu
góða, en afgerandi væri að hjónin byndu ekki hjarta sitt alfarið
við hann heldur Guð. Hið sama gilti um ætterni, því allt er
„holdlegt það af holdinu fætt er og allir eigum vér til Adams að
61 Jón Þorkelsson Vídalín: Vídatinspostilla. Húspostilla eður einfaldar predikanir
yfir öll hátíða- og sunnudagaguðspjöll árið um kring, ritstj. Gunnar Kristjáns-
son og Mörður Árnason, Mál og menning & Bókmenntafræðistofnun Há-
skóla Islands, Reykjavík 1995, 163.
62 Jón Þorkelsson Vídalín: Vídatinspostilla, 164.