Skírnir - 01.09.1998, Page 83
SKÍRNIR
VINNUDÝRKUN, MEINLÆTI
353
hjarta hans víkur frá Drottni“.24 Þetta gildir ekki síst um þá sem
standa einstaklingnum næst. Þar sem alla ber að elska jafnt er
óhófleg ást til fjölskyldunnar af hinu illa, og ber jafnvel að elska
fjölskylduna minna en aðra trúbræður til að sanna bæði frelsi sitt
undan áhrifum efnisins og algera tileinkun hins guðlega kær-
leikslögmáls. Þannig hefur til dæmis verið lögð á það áhersla að
hjónabandið eigi aðeins að vera „skynsamleg framleiðsla á börn-
um“ og að um leið og tekið sé til við að teygja kynlífsathöfnina á
langinn, njóta hennar og gera hana erótíska hafi menn gert sig
seka um að „dýrka holdið“.25
„Fyrirmynd“ mótmælandans er þá, samkvæmt hugmyndum
Webers, einmana og mannfælinn vinnufíkill og meinlætamaður.
Weber setur fram þá kenningu að þótt bein áhrif kristinnar trúar
á daglegt líf einstaklingsins fari sífellt þverrandi, þá hafi hún áður
verið mikilvægasti „uppalandi“ samfélagsins og að það gildismat
sem hún hafi mótað sé nú orðið að menningarlegu trúaratriði.
Þótt einstaklingurinn líti almennt ekki lengur svo á að æðstu
hagsmunir hans séu að öðlast eilífa frelsun í Guði, sem var upp-
runaleg ástæða þessa háa mats á vinnunni, þá viðheldur vinnu-
dýrkunin sér að mestu leyti á milli kynslóða og er nú annað hvort
réttlætt með tilliti til gagnsemi, eða, sé hún nægilega almenn,
einsog mér sýnist gilda um íslenskt samfélag, þarfnast alls engrar
réttlætingar við og er einfaldlega tekin gild sem einhvers konar
sjálfgildi.
Fæstir myndu vefengja öfgakennda vinnudýrkun Islendinga.
Sennilega myndu þó enn færri samsinna því að þeir séu meinlæta-
menn. Hér villir það okkur sýn að iðnbyltingin nam hér varla
land fyrr en eftir seinni heimsstyrjöld og þjóðin er því enn „ný-
rík“ og á hegðunarstigi sem ég freistast til að kenna við „frum-
kapítalisma". Raunar hefur „neyslusukk" Islendinga gert þeim
24 Jer. 17:5. Sbr. Weber: „Die protestantische Ethik und der Geist des Kapital-
ismus“, bls. 96-100; og „Die Wirtschaftsethik der Weltreligionen", bls. 527-
28.
25 Sjá Weber: „Die protestantische Ethik und der Geist des Kapitalismus", bls.
170-71. Sjá einnig rit hans Wirtschaft und Gesellschaft. Grundriss der ver-
stehenden Soziologie, bls. 329.