Skírnir - 01.09.1998, Page 182
452
ADOLF FRIÐRIKSSON
SKÍRNIR
Margir þjóðhollir og vandaðir menn hafa lagt sig fram um að
þjóna þessu nýja hagsmunamáli, en hér verður látið nægja að
ræða aðeins fáein atriði. I skýrslu frá ofangreindri nefnd, koma
fram margar nýstárlegar hugmyndir: m.a. er lagt til að hagnýta
„geirfugl" og „bjartsýni ungmennafélaga“, og hamrað á markaðs-
gildi „Leifs Eiríkssonar og venslafólks hans“.2 I niðurlagi skýrsl-
unnar er alvarleg áminning til yfirvalda: „Taka þarf á af krafti til
þess að Leifur Eiríksson verði ekki kyrrsettur í Noregi, gera
Ameríkumönnum ljóst að hann var Islendingur.“ Við afgreiðslu
fjárlaga á síðastliðnu hausti fékk fjárlaganefnd Alþingis greinar-
gerð Þjóðminjasafns um vísindalegt gildi bæjarrústar á Eiríks-
stöðum í Haukadal. Þar er tekið undir þessi sjónarmið á þann veg
að „fæðingarstaður Leifs Eiríkssonar" er talinn „einstaklega
spennandi rannsóknarverkefni“.
Ritaðar heimildir vantar
Það er athyglisvert hve langt er hægt að komast í landkynningu,
án þess að hafa fast land undir fótum í sögu þjóðarinnar. I
nokkrum ritheimildum frá miðöldum segir frá Eiríki rauða sem á
að hafa komið frá Noregi til Islands og síðan stýrt landnámi á
Grænlandi. Þegar þar var komið segir frá börnum hans, þ.á m.
Leifi. Þessar heimildir eru ekki skjalfestur vitnisburður um sagn-
fræðilegar staðreyndir, heldur sambræðingur af munnmælahefð-
um og skáldskap um ferðalög einstaklinga á víkingaöld sem ekki
er hægt að taka bókstaflega. En þó að þessar heimildir væru ein-
hvers virði um ferðir Leifs Eiríkssonar kemur hvergi fram hvar
Leifur var fæddur. Faðir hans er sagður hafa dvalið allvíða, þ.á m.
á Dröngum, í Suðurey, á Eiríksstöðum í Oxney, Eiríksstöðum í
Haukadal og síðar í Eiríkseyju við Grænland, í Eiríksfirði, á
Eiríkshólmum og loks í Brattahlíð. Hvergi kemur fram að Leifur
hafi fæðst á Eiríksstöðum í Haukadal eða annars staðar á íslandi,
og þess er hvergi getið að Leifur hafi dvalið hér á landi, eða
nokkru sinni komið hingað. Einu heimildirnar um veru Leifs á
2 „Skýrsla nefndar um tengsl menningarsögu þjóðarinnar við ferðaþjónustu."
Samgönguráðuneytið, 1995, Reykjavík.