Skírnir - 01.09.1998, Page 191
SKÍRNIR
LAUNHELGAR LÆKNAVÍSINDANNA
461
skynsemi eigi raunverulega í vök að verjast meðal lækna. Svo
mikið er víst að eftir að ég hætti mér aftur út í læknanámið er
tönglast á því við mig kvölds og morgna, bæði í bóknámi og
verkþjálfun, hvernig sjúklingarnir skulu vegnir og metnir með
aðferðum mælivísinda. Líkt og öðrum hleypur mér kapp í kinn
og ég legg heiður minn að veði við að ná valdi á flókinni meðferð
sjúklinga eftir aðferðum tæknivísinda. Smám saman, án þess að
minnst sé á það einu orði, held ég að allir þeir siðir sem mér voru
áður innrættir, og sem ég get ekki annað en talið vera heilbrigð
viðhorf til náungans, verði ómerktir - þeir eru ógiltir vegna þess
að þeir standa í vegi fyrir þeirri tækniþjálfun sem er megininntak-
ið í náminu sem ég stunda.
Nú vil ég árétta að ég er fyrst og fremst að lýsa hugmynda-
fræði, sem ég tel að búi að baki veigamesta hluta læknanámsins,
en ekki lífsviðhorfum einstakra lækna eða læknastéttarinnar í
heild. Þótt tækniþjálfunin kunni að hafa óæskileg áhrif á siðvit-
undina, er ósennilegt að menn verði að tilfinningasneyddum dón-
um upp til hópa. Eg þekki marga lækna sem eru ágæt prúðmenni.
Og dæmin um það að læknar séu háttvísir og sýni sjúklingum
sínum ríka umhyggju eru fjöldamörg. Ef til vill má að endingu
draga þá ályktun af reynslu minni af læknanáminu, að margir
læknar séu prúðmenni þrátt fyrir það sem þeim hefur verið inn-
rætt á námsferli sínum en ekki vegna námsins.
Eg mun nú láta staðar numið í frásögn minni af læknanáminu
og þeim áhrifum sem það hefur haft á viðhorf mín til annarra
manna. Ég hætti frásögninni í miðju kafi af þeirri einföldu ástæðu
að ég er sjálfur staddur á þessum punkti, og sé ekki öllu lengra.
En þegar ég skyggnist fram á við, þykir mér aðkallandi að leita
svara við tveimur spurningum.
í fyrsta lagi: Hversu alvarlegar afleiðingar hefur tæknivið-
horf lœknisfrxðinnar til mannsinsf Áhrifamáttur læknavísindanna
byggist augljóslega á því að maðurinn er skoðaður sem efnisfyrir-
bæri. Hins vegar er erfitt að gera sér grein fyrir því hversu dýru
verði tæknivöldin yfir mannskepnunni eru keypt. Brýn ástæða er
til að rannsaka hversu mikið tjón sjúklingar bíða af því að vera
gerðir að viðfangsefni tæknivísinda, sem ekki taka tillit til and-
legrar náttúru mannsins. Heimspekingar, félagsvísindamenn og