Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 6

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 6
G í s l i Pá l s s o n o g S i g u r ð u r Ö r n G u ð b j ö r n s s o n 6 TMM 2012 · 2 gáfu af sér þá mynd að þeir væru frumbyggjar norrænnar siðmenningar, eins og þjóðin hefði fæðst á tímum landsnámsins. Undir sterkum áhrifum orðræðu þjóðernispólitíkur lagði íslenski skólinn í fornsögurannsóknum mikla áherslu á djúpar sögulegar rætur íslensku þjóðarinnar (Einar Ólafur Sveinsson 1959:33). Mestalla tuttugustu öldina voru sögurnar ein mikil- vægasta stoðin, ef ekki sú mikilvægasta, sem Íslendingar byggðu á ímynd sína og fortíðarinnar (Gísli Pálsson 1995). Textarnar voru þó meðhöndlaðir á tvo ólíka vegu. Sumir fræðimenn, kenndir við sagnfestukenninguna, litu á þær sem nákvæma lýsingu raunverulegs fólks og atburða sem bæru vitni hetjudáða og persóna víkingaaldar. Þetta voru annars vegar evrópskir fræðimenn og hins vegar alþýðufræðimenn með rótfestu í þeim héruðum sem sögurnar greindu frá og þar með var þetta lengi ríkjandi viðhorf meðal þess alþýðufólks sem las þessar sögur. Bókfestumenn voru hins vegar háskólamenn í Reykjavík sem vildu búa til „höfund“ í borgaralegum nútímaskilningi og í þeirra augum voru sögurnar meira og minna skáld- skapur, sköpun bókmenntasnillinga. Hvor sem nálgunin var göfguðu allir fortíðina. Frá sjálfstæði hefur íslenskt samfélag, ímynd landsins og sjálfsmynd breyst, á róttækan hátt. Mikilvægast í því samhengi er hvernig síðari heims- styrjöldin og síðan kalda stríðið endurskilgreindi samfélagið og stöðu þess meðal þjóðanna. Hagkerfið var nútímavætt á tveimur áratugum, horfið var frá áherslu á landbúnað til mjög tæknivædds sjávarútvegs, stéttakerfi kom fram með nýjum ójöfnuði og Ísland færðist, stjórnmálalega og menningar- lega, nær Bandaríkjunum þótt landsmenn ræktuðu um leið tengsl sín við hinar Norðurlandaþjóðirnar. Nær okkur í tíma, að loknu köldu stríði og aukinni stjórnmálalegri og efnahagslegri samþættingu Evrópu, nýfrjáls- hyggju í stjórnmálum og efnahagslegum þrengingum síðustu ára hefur Ísland horft í austur. Í breyttum heimi mun menningarminni Íslendinga mæta ógnunum og áskorunum, sérstaklega munu hugmyndir um íslensk sérkenni, tungumál, hefðir og menningarmæri breytast. Samt virðist Homo islandicus ekkert á förum. Fólk eins og við: Norðmenn og germanski heimurinn Nokkrir þeirra íslensku menntamanna sem leiddu viðleitni Íslendinga til að mynda samheldna þjóð með sterka sjálfsvitund sóttu menntun sína til Þýskalands og tileinkuðu sér fljótt þarlendar hugmyndir um kynþáttafræði, Rassenkunde, um menningarlegt stigveldi og kynhreinsun, allt hugmyndir sem áttu eftir að setja sterkan svip á þýska mannfræði og síðan þriðja ríkið. Í baráttu sinni notuðu þeir hugmyndir um yfirburði norræna kynþáttarins. Sumir báru kynþáttaboðskapinn gegnum Kaupmannahöfn. Einn þeirra, Guðmundur Hannesson (1866–1946) læknir, um tíma landlæknir, átti eftir að leika mikilvægt hlutverk sem varðar sögu íslenskrar líkamsmannfræði.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.