Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Side 8

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Side 8
G í s l i Pá l s s o n o g S i g u r ð u r Ö r n G u ð b j ö r n s s o n 8 TMM 2012 · 2 jafnt illar sem góðar, eru ættgengar, arfur, sem forfeður þeirra og formæður höfðu skilið þeim eftir til umráða. En arfinum fylgdi sú ábyrgð, að gæta þess, að hann spilltist ekki við að blanda blóði við verri ættir“ (Eiður S. Kvaran 1934:84–85). Eiður tók saman orðaforða fornsagnanna um líkamleg einkenni, í þeim tilgangi að átta sig á hvaða kynþættir byggðu Ísland á þeim tíma. Í sögunum sem hann tók fyrir fann hann lýsingar á 154 mönnum, mest karlmönnum og þar af 20 útlendingum. Mikil áhersla er lögð á vöxt, andlitseinkenni og hárlit: Líkamseinkennum … er hér lýst svo skýrt og greinilega, að mannfræðingur getur óhikað dregið af þeim ályktanir um það, af hvaða kynstofni þeir hafa verið. Þessar lýsingar minna mjög á nútíma mannfræðirannsóknir, aðeins er sá munur á, að hér er öllum athugunum á útliti þeirra … lýst með orðum, en ekki tölum, eins og nú tíðkast (Eiður S. Kvaran 1934:83). ,,Enda þótt forníslenskar mannlýsingar beri vott um glöggskyggni og skarp- leik á óvenjulega háu stigi,“ bætir Eiður við, ,,þá er auðvitað ekki við því að búast, að þær hafi eins mikið gildi og rannsóknir þær, sem gerðar eru nú á dögum samkvæmt reglum mannfræðinnar. Þó að sumum mannlýsingunum svipi mjög til nútíma mannfræðiathugana, þá eru þær yfirleitt ekki gerðar eftir vísindalegum sjónarmiðum, hvað þá mannfræðilegum“ (1934:86). Hvað varðar hárlit, en hann sagði Eiður að væri besti mælikvarði á fegurðarskyn forfeðra sinna (1934:93), þá var svart hár oftast tengt einhverju illu en ljóst hár hins vegar nefnt í sömu andrá og fegurð, mikilfengleiki og virðing. Hvergi sjást þess merki í skrifum Eiðs að hann hafi verið meðvitaður um þær ógöngur sem fylgja slíkum samsömunum ytra útlits og atgervis, og hið sama gildir raunar um skrif Guðmundar Hannessonar. Samhliða greiningu sinni á sögunum mældu líkamsmannfræðingurinn og læknirinn og flokk- uðu bæði lifandi fólk og beinagrindur frá miðöldum. Eiður hafði áhrif á hugmyndir hér heima með skrifum í blöð og tímarit, þótt ekki skuli ofmeta þau (Unnur Birna Karlsdóttir 1998:78). Hann var lofaður sem meistari hins norræna arfs. Morgunblaðið segir svo frá Eiði og störfum hans 11. júlí árið 1936: … það er oss mikils virði að eiga góða sonu í virðingarstöðum erlendis, sem kynna land vort og þjóð á þann hátt, er hann hefir gert – En þar sem við nú höfum eignast efnilegan vísindamann í mannfræði, vísindagrein, sem er lítt rannsökuð hjer, en hin fylsta nauðsyn er á að gefa góðan gaum, virtist þó öllu eðlilegra og æskilegra, að vjer færðum oss þekkingu hans í nyt á þann hátt að gera honum fært að starfa í vísinda- grein sinn hjer á landi, t.d. í sambandi við Háskóla vorn. Því fremur er þetta æskilegt, þar sem dr. Eiður mun hafa hinn fylsta áhuga á að helga íslenskri mannfræði krafta sína í framtíðinni, og telja má víst, eftir því áliti sem erlendir vísindamenn, þeir er hann þekkja, hafa á honum, að þar væri rjettur maður á rjettum stað.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.