Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 21

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 21
H o m o i s l a n d i c u s – i n n a ð b e i n i TMM 2012 · 2 21 sérfræðingar á sviði líffræðilegrar mannfræði tóku að líta á bein sem nánast úrelt viðfangsefni, sem hlytu að víkja fyrir erfðaefninu DNA (Sommer 2008). Aðeins gögn af síðara taginu, segja menn stundum, leyfa fræðimönnum að glíma af viti við sögu mannsins. En þótt aðferðir og kenningar erfðafræði og líffræðilegrar mannfræði hafi reynst gjöfular og opnað nýja sýn er líklegt að þær muni, rétt eins og fyrirrennarar þeirra, taka breytingum, ekki síst ef haft er í huga að einsýn genaumræða hefur að undanförnu sætt vaxandi gagnrýni. Þjóðernishugmyndir áttu eflaust nokkurn þátt í áhuga Íslendinga á líkamsmannfræði, erfðafræði og líffræðilegri mannfræði, og yfirleitt rann- sóknum á beinum og erfðaefni. Slíkar rannsóknir opnuðu mönnum sýn inn í blómaskeið íslenskrar menningar þegar hetjur riðu um héruð og hvöttu menn til að ímynda sér sérkenni hins „sanna“ Íslendings, í bland við klisjur og fordóma samtímans (Sigríður Matthíasdóttir 2004). Full ástæða er til að huga að þessari sögu og ábyrgð rannsókna og fræða. Undanfarið hafa miklar umræður farið fram víða í Evrópu, meðal annars í skugga fjöldamorðanna í Noregi 22. júlí 2011, um hreina kynþætti, menningar- lega fjölbreytni og þann hugmyndalega og pólitíska jarðveg sem leiðir af sér hatramma kynþáttahyggju. Hryðjuverkin í miðborg Oslóar og Útey hafa ekki aðeins vakið spurningar um sálarlíf þess manns sem stóð að verki og það norska samfélag sem ól hann, heldur einnig um rætur hins norræna og evrópska heims sem við byggjum. Eðlilegt er að fólk spyrji um vaxtarskilyrði kynþáttahyggju nú á tímum og áhrif fræðasamfélagsins á hugmyndir okkar um hver við erum, hvað greini okkur frá öðrum og hvað skilji yfirleitt á milli mannhópa. Hvaðan koma hugmyndir okkar um litaraft, hreinleika, blöndun og fjölbreytni? Hver er ábyrgð mannfræðinnar, fræðigreinarinnar um Homo sapiens? Að hve miklu leyti hefur hún endurómað og jafnvel lagt grunninn að kynþáttahyggju samtímans? Kyllingstad (2012) reifar slíkar spurningar í norsku samhengi. Íslensk líkamsmannfræði og skildar greinar verða að sjálfsögðu ekki undanskildar. Þótt sagnfræðingar og líkamsmannfræðingar síðustu aldar hafi stuðst við ólík gögn, hafa þeir haft tilhneigingu til að setja saman sviplíkar frásagnir af Homo islandicus, með áherslu á hreinleika og sérstöðu. Slíkar frásagnir hafa stundum tekið mið af áþekkri umræðu annars staðar, einkum á Norður- löndum, í Þýskalandi og Bandaríkjunum. Sem nýlenda Danmerkur var Ísland þó í fremur sérkennilegri heimspólitískri og menningarlegri stöðu. Annars vegar voru Íslendingar hluti af hinu fjarlæga norðri, Thule, í hópi annarra nýlenduþjóða á þeim slóðum í harðri baráttu við náttúruöflin á jaðri siðmenningar, eins og það hét. Hins vegar, sérstaklega í augum ger- manskra þjóða, var oft litið á Ísland sem vöggu norrænnar menningar – sem heim hugrakkra, frjálsra manna (það fór minna fyrir konum en körlum þótt stundum væri að vísu talað hátt um viljasterkar valkyrjur), sem rituðu bókmenntir á heimsvísu. Ísland þótti upprunalegt og norrænt, nærtækt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.