Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Side 79

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Side 79
„ E i n u s i n n i va r – t r é d r u m b u r“ TMM 2012 · 2 79 hetjunnar Astro Boy (Tezuka, 2002) við Gosa, en Astro Boy er véldrengur búinn til í þeim tilgangi að uppfylla þörf foreldranna fyrir nýjan son í stað þess sem fórst. Höfundi Astro Boy, Osamu Tezuka, hefur greinilega þótt vænt um ævintýrið um Gosa því hann hefur teiknað sína eigin manga-útgáfu af henni (Tezuka, 1952), sem fylgir þó að mestu söguþræði Disney-kvik- myndarinnar. Þessi mikli fjöldi margskonar afleiddra verka er nú orðinn hluti af verkinu Gosi í ákveðnum skilningi og hefur áhrif á skilning fólks á verkinu. Gosi er orðinn að sjálfstæðri menningarlegri stofnun í skilningi menn- ingarfræðanna þar sem verkið er orðið að viðmiði sem oft er skírskotað til. Má nefna hversu oft er vísað í nefið sem lengist við ósannsögli, og umbreytinguna úr spýtustrák í alvörudreng. Í dægurmenningu birtist Gosi á fjölbreytilegan hátt, til dæmis í teiknimyndum og myndasögum, sem algengur grímubúningur, sem vörumerki allskonar leikfanga og sælgætis. Menningarfræðingar myndu segja að allar þessar vörur væru orðnar hluti af eiginlegum texta Gosa. Það er athyglisvert að hið ofbeldisfulla er yfirleitt gjörsamlega horfið úr flestum þessara afleiddu texta. Félagsfræðingurinn Richard Wunderlich og enskuprófessorinn Thomas J. Morrisey greindu mörg hundruð útgáfur af verkinu, í formi bókmennta, leikrita og kvikmynda í Bandaríkjunum síðustu ár. Útgáfurnar eru mjög ólíkar, margar eru styttar útgáfur á sögu Collodis, sumar fjalla um aukapersónur, aðrar eru skáldverk sem halda áfram þar sem Gosi Collodis endar. Wunderlich og Morrisey komast að fjölmörgum forvitnilegum niðurstöðum, meðal annars þeirri að sagan af Gosa hafi gegnum áratugina verið milduð mjög í takt við það sem þótti við hæfi að lesa fyrir börn og til að skerpa á hverjum þeim uppeldis- legum boðskap verksins sem þótti eiga við hverju sinni – þróun Gosa haldist í hendur við ýmsar breytingar, bæði félagslegar og í uppeldis- og menntahug- myndum (Wunderlich og Morrisey, 2002). Um leið hafi sagan af Gosa þróast yfir í andstæðu sína í þessu langa ferli, ríkjandi form hennar sé ofureinfaldað og kjarninn í sögunni sé að hvetja til auðsveipni og hlýðni. Lok Nýlegar útgáfur af Gosa, svo sem hin íslenska Gosi – ævintýri spýtustráks (Collodi, 1883/1987) og kvikmynd Benignis Pinocchio (Benigni, 2002), sem báðar fylgja verki Collodis frá 1883, benda til áhuga á og afturhvarfs til hinnar dökku sæborgar Collodis. Gosi er flókin sæborg, miklu flóknari og áhugaverðari en ætla má af þeirri hefðbundnu ímynd sem hinn almenni lesandi hefur af honum og rekja má til Disneys. Hann á sér dökkar, ærsla- fullar, illar hliðar sem eru áberandi og miðlægar í sögu Collodis. Hann er hin illa sæborg, sem verður að umbreytast í hina góðu til að verðskulda fullkomlega mennskan líkama. Þetta fellur afar vel að sæborgarfræðum þar sem mennskan er fólgin í líkamanum og sæborgir vekja ótta – en hafa um
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.