Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 110

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 110
Á d r e p u r 110 TMM 2012 · 2 verkum hans, og almenningur sýnir list hans aukinn áhuga fremur en hitt. Vegferð Guðmundar í þá rúmu fjóra áratugi sem hann náði að lifa af list sinni, eins og nokkrir af myndlistar- mönnum landsins á sínum tíma, ætti að vera tilefni til þess að greina og skoða hann sem nokkuð margslunginn lista- mann fremur en fyrirfram gefna stærð og hugmyndafræðilegan steypuklump, með upplitaða merkimiða frá 6. og 7. áratugi 20. aldar. Fyrsti fjöllistamaðurinn? Guðmundur fékkst við margt og var afar afkastamikill. Ekki er unnt að skrifa um hann fjórar síður í listasögu- bók án þess að skoða mörg verk hans, og þá ekki aðeins það sem kann að finnast í Listasafni Íslands. Einnig þyrfti að kynna sér sæmilega umræðuna um hann í fjóra áratugi og hans eigin orð í jafn langan tíma, til viðbótar við eitt og annað nýlegra, m.a. sýningarskrá vatns- litamyndasýningar 1995 á Kjarvalsstöð- um og yfirlitssýningarinnar í Gerðar- safni 2006. Þar og víðar skrifar Kristín G. Guðnadóttir listfræðingur um lista- manninn. Þegar farið er í gegnum verkefnasögu Guðmundar kemur í ljós að hann fékkst við olíumálverk frá 1922 til 1963 og skipta myndirnar mörgum hundruðum. Myndefnið er héðan, frá Grænlandi, af Samalandi, úr Ölpunum og frá Mið- jarðar hafslöndum. Hann var fyrstur Íslendinga til að vinna umtalsvert af grafík. Um 80 koparstungur (þurrnálar- verk í blekpressu) frá 1923–1936 eru raðir verka með myndefni frá Mið-Evr- ópu, úr íslenskri náttúru, úr gömlu Reykjavík og af eldgosi í Grímsvötnum 1934. Ein 40 grafíkverk eru í eigu Lista- safns Íslands, sýnd í fyrsta sinn 2006. Guðmundur lagði höfuðáherslu á vatnslitamálun frá 1952 til 1963 og vann marga tugi mynda á hverju sumri. Sumar hverjar eru lausbeisluð tjáning á nærumhverfi í náttúrunni. Nokkur fjöldi teikninga og rauðkrítar- eða past- elmynda er til eftir hann. Tugir stórra höggmynda hans sýna flestar fólk en einnig dýr og þjóðsagnaminni. Fjöl- margir minni skúlptúrar, menn og dýr, urðu að leirmunum Listvinahússins en Guðmundur átti þar einnig þátt í að hannaðir voru og framleiddir þúsundir muna, svo sem skálar, krúsir, veggplatt- ar, ker og vasar, sumt eftir hans teikn- ingum. Munirnir kölluðust á við ýmsa stíla; gamlan norrænan stíl, grískt yfir- bragð, jugend- og art deco-stíl, japanska raku muni o.s.frv. Margir þeirra eru víðs fjarri leirstyttunum hvað varðar yfirbragð og hafa alþjóðlega skírskotun (Listvinahús, Arctic books 2006). Hann vann um tug glerlistaverka í hefðbundn- um stíl og ýmis verk úr smíðajárni, hannaði húsgögn, minjagripi og skart- gripi í litlu magni, var liðtækur ljós- myndari (safnið varðveitt hjá Ljós- myndadeild Þjóðminjasafnsins), vann rúman tug klipptra kvikmynda 1946– 1954 (í umsjá Kvikmyndasafnsins), orti ljóð og ritaði fjórar bækur og fjölda blaða- og tímaritsgreina sem m.a. eru aðgengilegar í stóru innbundnu safni (varðveitt hjá Landsbóka-Háskólabóka- safni). Guðmundur var áhugamaður um skipulagsmál og húsagerð. Hann átti þátt í skipulagningu skrúðgarða eða svæða, t.d. tillögum um Sjómannagarð í Ólafsvík, umhverfi Aðalbyggingar Háskóla Íslands og Skólavörðuholtið (sem ekkert varð úr) og vann, einkum með Guðjóni Samúelssyni, að steining- araðferðinni við útveggjahúðun bygg- inga og að lágmyndum eða loftskreyt- ingum í nokkrum höfuðbyggingum Reykjavíkur. Fleira mætti telja en það sem hér hefur verið minnst á dugar til þess að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.