Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 113

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 113
Á d r e p u r TMM 2012 · 2 113 mund, hvort hún las mikið eða ræddi við fólk. En við lestur kaflans kom ósjálfrátt upp í hugann sú óþægilega til- finning að efnið væri hraðsoðið. Ég ætla að safna saman nokkrum staðhæfingum eða rökum og orðum Æsu og leggja út af þeim, jafnvel andmæla. Því miður er ekki rými til að sinna öllu sem þyrfti en ég vona að hér fari á eftir málefnalegt innlegg í brýna umræðu um Listasög- una, eins þótt svið mitt sé þröngt og ég leikmaður (og sonur Guðmundar). Skáletruð orð lýsa inntaki þeirra málsgreina Æsu sem ég kýs að fjalla um. Náttúrurannsóknir og upphafin náttúrudýrkun? Guðmundur á að hafa sett (væntanlega meðvitað) listiðkun sína í beint sam- hengi við rannsóknir á náttúrunni. Hann var sem ungur maður styrktur af íslenska ríkinu til að kanna, í tvö sumur, nýtanleg jarðefni, einkum leir. Síðar fór hann í margar ferðir um hálendið, auk þess að stunda veiðar. Mér er hulin ráð- gáta hvernig skammæjar leirrannsóknir með sérfræðingi og skemmti-, fjall- göngu- eða skoðunarferðir með fjöl- skyldunni eða Fjallamönnum geta hafa fengið listamann til að setja 40 ára list- iðkun í beint samhengi við náttúru- rannsóknir, eins þótt hugtakið „rann- sóknir“ sé notað býsna frjálslega. Nær væri að segja að grúsk eða ferðir Guð- mundar sem leikmanns í náttúrufræð- um hafi verið honum frjálsleg upp- spretta hugmynda í listum. Önnur orð Æsu, næstum samhljóða orðum Björns Th. Björnssonar, um upp- hafna náttúrudýrkun hans eru lík gild- ishlaðinni nútíma orðræðu í náttúru- vernd. Þau eru fjarri því að lýsa áhuga og þekkingu Guðmundar á náttúru margra landa og virðingu fyrir eða gleði yfir margbreytileika hennar sem hann reyndi að túlka. Stundum með því að ýkja, skálda að fullu eða herða á, líkt og spunamenn í listum freistast til. Til- gangur Guðmundar með því að gera nákvæmlega svona er að svala innri þörf. Hver hún sé og hvað hana megi kalla af sanngirni, geta menn rætt um. Hún segir hann líka hafa verið fjalla- dýrkanda. Má vera, en hvað með dýra- dýrkanda, frumbyggjadýrkanda, fugla- dýrkanda eða haustgróðurdýrkanda? Gæti verið að áhugi Guðmundar á fjöll- um, gróðri og jöklum hafi verið álíka fjarri einhvers konar dýrkun og dálæti Kjarvals á mosa og hrauni var því fjarri; eða áhugi Snorra Arinbjarnar á húsum og götum; áhugi Gunnlaugs Blöndal á konum? Hvað mætti kalla áhuga þessara málara á sínum mótífum? Sú spurning vekur líka aðra. Voru þessir málarar að setja listiðkun í beint samhengi við rannsóknir á sínum algengustu mótíf- um? Auk þessarar fjalla- og náttúrudýrk- unar á Guðmundur að hafa samhæft sjónrænar fyrirmyndir að þessari nátt- úrudýrkun (hvað sem slík orðræða merkir) fremur en að náttúran væri honum uppspretta tjáningar á þann expressjónístíska hátt sem hún var til að mynda Ásgrími Jónssyni og Kjarval. Þvert á móti þessum orðum Æsu tel ég Guðmund oftar en ekki hafa verið að túlka landslag huglægt og skálda nátt- úru sem expressjónisti og hef um það fjölmörg dæmi, einkum í vatnslita- myndum og sumum eldri olíumyndum. Raunar er æsileg og hraðmáluð olíu- mynd hans af Grímsvatnagosi 1934, sem skreytir heilsíðu í Listasögunni, býsna expressjónísk, a.m.k. ekki síður en sumar myndir þeirra íslensku málara sem taldir eru að einhverju leyti expressjónískir. Hve margar myndir í ætt við hana eða lausbeislaðar haustlita- myndir Guðmundar hafa listfræðingar séð? Bera má saman sumar myndir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.