Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Side 124

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Side 124
Á d r e p u r 124 TMM 2012 · 2 rænar borgir glæsilegri fyrir augað, og munaði þar mest um nýjar eða endur- reistar verslunarhallir og ljósaauglýsing- ar. Lífskjör almennings voru á hinn bóginn svipuð lengi vel, en smám saman tókst samtökum launafólks vestan megin að knýja fram betri kjör en við- gengust fyrir austan þar sem flest gekk hægar og stöðnun ríkti á mörgum svið- um því að drifkraft markaðskerfisins skorti. Reyndar mun sumum borgara- legum forystumönnum á Vesturlöndum hafa verið kappsmál að geta sýnt fram á jafngóð eða betri lífskjör verkafólks hjá sér en þekktust fyrir austan og voru af þeim sökum linari í andstöðu sinni við kröfur verkalýðssamtaka. Þessi munur fór ekki fram hjá nein- um þeim sem ferðaðist um með opin augu. Samt er alls ekki rétt að halda því fram að sár fátækt eða eymd hafi ríkt í A-Evrópu. Stúdentum frá þriðja heimin- um sem stunduðu þar nám, fannst fólk lifa í velsæld og jöfnuði miðað við það sem þeir þekktu heimanað frá sér. Skólakerfi og velferðarkerfi var einnig án efa í mun betra lagi en áður hafði verið. Fólk var vissulega hundóánægt út af takmörkuðu vöruframboði og ferða- frelsi sem sumpart var sagt stafa af gjaldeyrisskorti, en þarna var þó viss gróska í ýmissi menningarstarfsemi, til dæmis á sumum sviðum leiklistar, tón- listar og kvikmynda. Margt menntafólk og skapandi listamenn þoldu samt einna verst þá andlegu þrúgun og stýringu sem að þeim kreppti. Þrátt fyrir ýmsar efasemdir töldu margir sósíalistar á Vesturlöndum lengi vel við hæfi að láta þessi austantjaldsríki njóta vafans. Þeir vildu jafnvel líta á for- ystumenn þeirra sem bandamenn að vissu marki þótt þeir væru löngu hættir að hugsa til þess að taka sér skipulag þeirra til nokkurrar fyrirmyndar. Afstaðan til þriðja heimsins og nýlendn- anna virtist líka sameiginleg. Margir drögnuðust auk þess of lengi með þá von að ráðamenn þar mundu sjá að sér. Þekktastur þeirra hér á landi var Hall- dór Kiljan Laxness. Stundum virtist líka mega sjá merki þess arna. Fordæming Krústjoffs á Stalínstímanum 1956 var eitt þeirra. Afrek Sovétríkjanna í geim- ferðum 1957 og 1961 virtust sýna að ekki væri allt í kaldakoli. Fyrir lang- flesta fauk þó síðasta hálmstráið við innrásina í Tékkóslóvakíu sumarið 1968. Þessi langvarandi hollusta eða jákvæða hlutleysi gagnvart Sovétríkjun- um bitnaði samt hvorki á baráttu íslenskra sósíalista fyrir bættum kjörum alþýðu né eflingu menningar á mörgum sviðum. Skáldverk Halldórs Laxness sköðuðust ekki hið minnsta við sósíalísk viðhorf hans, nema síður væri. Ástæða er líka til að taka fram í þessu samhengi að hvorki Steinn Steinarr né Halldór snerust nokkru sinni til fylgis við Sjálf- stæðisflokkinn eða kapítalísk viðhorf þótt þeir sneru baki við sovétskipulag- inu. Örfáir íslenskir sósíalistar virðast reyndar fram í rauðan dauðann hafa litið svo á að ráðamenn í Sovétríkjunum væru ‘félagar’ þeirra í anda alþjóða- hyggjunnar frá því kringum 1920 og sumum jafnvel fundist eðlilegt að þau veittu þeim efnahagslegan stuðning. Ekki verður á hinn bóginn séð að það viðhorf hafi verið gagnkvæmt. Aldrei féllust Sovétmenn til dæmis á beiðni Einars Olgeirssonar á sjötta áratugnum um að veita fyrirtækjum sósíalista umboð fyrir bifreiðum og landbúnaðar- vélum sem hefði getað fjármagnað bar- áttu Sósíalistaflokksins. Kristni E. Andréssyni tókst með herkjum að kría út styrki frá Rússum til að ljúka við hús Máls og menningar. En þeir áttu honum líka gamlan greiða að gjalda fyrir sér-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.