Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 125

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 125
Á d r e p u r TMM 2012 · 2 125 kennilegan erindrekstur í Bandaríkjun- um í upphafi síðari heimsstyrjaldar (s. 186). Þetta er líka eina dæmið sem ótvírætt liggur fyrir um slíkan styrk til fyrir- tækja tengdum Sósíalistaflokknum. Önnur húsakaup voru til að mynda fjár- mögnuð af eigin rammleik, hús Þjóð- viljans á Skólavörðustíg 19 á árum síðari heimsstyrjaldar, Tjarnargata 20 um miðjan sjötta áratuginn og hús Þjóðvilj- ans í Síðumúla 6 um miðjan áttunda áratuginn. Enda hefði það ekki átt að vera ofverk fyrir stjórnmálasamtök með tugþúsundir kjósenda á bakvið sig að kaupa hús með áratuga millibili. Ein- hver kaldrifjaður kynni að segja að þess- um eina sannanlega sovéska fjárstyrk hafi ekki verið illa varið með því að reisa hús yfir bókmenningu en engu að síður er þetta svartur blettur á stjórn- málasögu íslenskra sósíalista. Í bókum þeirra Þórs Whitehead og Hannesar örlar ekki á samfélagslegum skilningi. Þeir virðast ekki sjá að alþýða manna hafi haft neina ástæðu til að berjast fyrir bættum kjörum að eigin frumkvæði. Verkalýðsbarátta í hverju krummaskuði er talin skipulögð vegna undirróðurs frá Moskvu. Kvæði Jóhann- esar úr Kötlum, ‘Sovét-Ísland, óskaland- ið, hvenær kemur þú’ er túlkað svo að meginmarkmiðið væri að innlima Ísland í Sovétríkin. Fæstir munu reynd- ar þekkja meira en þetta upphaf að löngu ljóði. Hin dálítið bernska hug- mynd Jóhannesar var hinsvegar sú að ráð (sovét) verkamanna, bænda og sjó- manna mundu ráða mestu um stjórn landsins allri alþýðu til farsældar. Stjórnarfarsleg tengsl við Sovétríkin voru hvergi í huga þessa þjóðfrelsis- manns. Maður spyr sig stundum hver geti verið tilgangur höfunda með skrifum af þessum toga. Eru þeir bara að slá sig til riddara gegn rauðliðum? Er tilgangur- inn að reyna að fæla fólk frá að berjast gegn því óréttlæti sem enn viðgengst um heim allan þar sem fjármálabraskar- ar og pólitísk handbendi þeirra njóta ómældra efnahagslegra forréttinda fram yfir heiðarlega vinnandi fólk? Er í því skyni reynt er að innræta fólki að eng- inn annar valkostur sé í sjónmáli en sovéskt gúlag? Sérhver viti borinn maður ætti að skilja hversu fráleitt slíkt sjónarmið er. Maður undrast því öðru hverju að fyrrnefndir höfundar skuli halda slíkri fásinnu fram, því þetta eru að mörgu leyti óvitlausir menn og Þór hefur meðal annars skrifað ágætar bækur um aðdraganda og upphaf síðari heimsstyrjaldar. En þeim er kannski vorkunn. Víst má halda því fram að það sé tómt mál að fjalla um Sovétríkin sálugu og tengsl vestrænna sósíalista við yfir- völd þeirra. Þetta er liðin tíð og sumum finnst óþarfi að elta ólar við hugarburð og samsæriskenningar manna á borð við fyrrnefnda höfunda. Það er á hinn bóginn hart undir því að búa að fjöl- margir af hinum bestu baráttumönnum fyrir bættum kjörum allrar alþýðu til lífs og sálar séu úthrópaðir sem glæpa- menn af ótíndum strákum fyrir það eitt að álpast til að trúa ísmeygilegum áróðri. Sérstaklega þar sem sú trúgirni gerði engum illt nema þeim sjálfum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.