Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 131

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 131
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2012 · 2 131 myndasöguhöfundurinn Láki, fær list- rænt séð meira vægi innan sögunnar, en eins og fram hefur komið eru þrjár sagna hans birtar í bókinni og varpa á sinn hátt ljósi á ýmis átakamál verksins. Láki virðist gangast inn á hugmyndir Elísabetar og hafa þegið af henni ‚koss‘, með tilheyrandi hæfileika til að gefa hann áfram. Staða hans er þó tvíræðari en Davíð veltir því stundum fyrir sér að hversu miklu leyti Láki sé að leika hlut- verk. Lesandi hlýtur að velta þessu fyrir sér líka, sérstaklega í ljósi myndasagn- anna, en sú sem opnar bókina, tilbrigðið við sköpunarsöguna sem inniheldur hugmyndina um Lífsins tré og ‚kossinn‘ endar ekki beint á björtum nótum fyrir þá sem verða hans aðnjótandi. Sagan segir frá tveimur ævintýragjörnum ung- mennum sem sætta sig ekki við einfald- leika hversdagsins og leggja upp í leit að Lífsins tré með kind í bandi. Eftir að hafa fundið tréð og borðað ávöxt þess, heyra þau rödd Guðs og hann er ekki ánægður: „Héðan í frá verður engin friðsæld í sálum ykkar. Þið verðið knúin áfram af innri ófullnægju […] Kyssist þið börn. Sú verður leið ykkar til að geta afkvæmi. Ekki af lendum ykkar [minn- umst hér að Davíð er ættleiddur], heldur með kossi, með andardrættinum. Þau verða ekki hold af ykkar holdi, heldur eldur af ykkar eldi“ (46–47). Þau kyssast og þegar þau snúa til baka til kindarinn- ar er hún dauð, en þau skera hana samt á háls í fórnarskyni og lokamyndin sýnir kindina dauða, liggjandi í blóð- polli; fyrir miðju hans er hvítt far eftir hönd. Er þetta sjálft guðslambið? Söguna gerir Láki í kjölfar atburð- anna sem eru uppistaða bókar Guðrúnar Evu, eftir að allt hefur farið á versta veg. Innblásturinn fær hann úr Biblíu sem hann finnur á bóndabæ foreldra Elísa- betar, en þangað flýja þau Elísabet undan æði Jóns. Bærinn er á Suðurlandi, jörðin eyðilögð vegna eldgossins og öskufallsins sem hefur lagt hluta lands- ins í eyði: „brunnin hús, ónýtar búslóðir og […] sjórinn […] orðinn að þurru landi“ (322). Þrátt fyrir þetta er bærinn í ágætu ástandi, því Davíð sinnir honum af alúð, límir fyrir glugga og mokar burt ösku. Áður hafði Láki skrifað útgáfu af ævintýrinu um Bláskegg og nú veit hann hversvegna: „Hinu forboðna er stillt upp eins og beitu á öngli og boðskapurinn virðist vera sá að maður eigi að falla fyrir freistingunni. Maður eigi að grafast fyrir um sannleikann, sama þótt það hafi skelfilegar afleiðingar“ (321). Bataille hefði orðið glaður. Þegar Davíð kemur á bæinn, eftir að allt er um garð gengið, og heyrir frásögn móður sinnar: „eins og hún hefði verið að bíða eftir að fá að létta á hjarta sínu, eða réttara sagt firra sig ábyrgð, þyrla upp ryki líkt og sveitungi hennar, Katla“ (338). Hér kemur það enn á ný, sköpunarkrafturinn, eða helsti fulltrúi hans, er illur, henni er líkt við eldfjallið sem valdið hefur gríðarlegri eyðileggingu.2 Áður hafði komið í ljós á hvern hátt eldfjallið er illt, en á ferðum sínum til ættaróðalsins kemst Davíð í kynni við jarðfræðinga og „illskan barst í tal af því að þau töluðu oft um eldfjall- ið, lifibrauð sitt og helsta viðfangsefni, eins og það væri illt.“ Þau útskýra þetta nánar: „Eldfjallið er ekki með meðvituð- um hætti að reyna að skemma út frá sér“, en „því stendur nákvæmlega á sama. Þannig er illskan. Hún er í felubúningi.“ Það þarf að viðurkenna illskuna og taka með því afstöðu „og það er í það minnsta óþægilegt, í versta falli lífshættulegt. Þess vegna reynum við með hugarleik- fimi að umbreyta illskunni í andstæðu sína. Breyta blýi í gull“ (216). Hér má vel greina einskonar leiðarstef eða ‚lykil‘ að verkinu, þó sköpunin/ freistingin sé ill og boði allt illt þá kemur það ekki í veg fyrir að við reyn-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.