Úrval - 01.12.1947, Blaðsíða 114
112
TJRVAL
hrifinn af Douglas, enda skrif-
aði hann honum mörg bréf, sem
lýsa taumlausri aðdáun hans
og vináttu, en hrifningin byggð-
ist ekki eingöngu á andlegu að-
dráttarafli. Douglas var aðals-
maður, og Wilde dáðist að aðl-
inum; Douglas var að sýsla við
ljóðagerð, og Wilde elskaði
skáld; Douglas var stórglæsileg-
ur á velli, og Wilde dýrkaði
líkamsfegurð.
Þegar fundum þeirra bar
saman, var Douglas tuttugu og
eins árs að aldri. Hann var
þriðji sonur Queensberry
markgreifa og bjó hjá móður
sinni, sem var fráskilin. Hann
var að eðlisfari góðgjarn, hrein-
skilinn og tryggur vinur vina
sinna, en einnig heiftúðugur í
garð óvina sinna, einþykkur og
óráðþæginn. Móðir hans hafði
spillt lionum með uppeld-
inu og sært fram lökustu eigin-
leika hans: eigingirni, hroka og
geðofsa, sem ávallt kom í ljós,
ef hann fékk ekki vilja sínum
framgengt. Hann lét gott koma
á móti góðu, en þoldi engum
minnstu tilraun til áhrifa á
gerðir sínar.
Þeir Wilde voru allmikið sam-
an og skrifuðust á þess á milli.
Um tíma var með þeim „náinn
kunningsskapur", sem Douglas
lýsir svo, en sem fór þó aldrei
út fyrir takmörk „venjulegra
skólapilta heimskupara,“ Dou-
glas dvaldi um tíma á sveitabæ,
sem Wildehjónin höfðu tekið á
leigu, og voru þeir Wilde þar
einir nokkrar vikur, því að
Constance þurfti að bregða sér
burtu. Wilde bjó tvisvar hjá
Douglas, í íbúð hans í Oxford,
og einu sinni í húsi móður hans
í Berkshire. Þeir ferðuðust
saman til Parísar, Flórenz og
Algier, og vinátta þeirra varð
brátt umræðuefni þeirra, sem
lepja sögur um náungann. Hún
varð líka tilefni hneykslis, þeg-
ar faðir Douglas kom fram á
sjónarsviðið.
Það er ekki fjarri lagi að
segia, að Queensberry mark-
greifi hafi verið vitfirringur,
því að hann vildi hafa allt eftir
sínu eigin höfði, og ef einhver
þrjóskaðist við að láta að vilja
hans, sleppti hann sér.
Hann var með afbrigðum
uppstökkur og sérvitur, og
sveifst einskis, ef hann þóttist
þurfa að hefna sín fyrir móðg-
un. Það má vera að hestum hans
og hundum hafi verið vel við
hann, því að hann var miklu
meira með þeim en konu sinni