Hlín - 01.01.1967, Síða 39
H lin
37
Mjög fjölhæf, enda hafði hún notið mentunar í mörg-
um greinum, innanlands og utan, og veitti kenslu í hús-
mæðrafræðum, garðyrkju og handavinnu.
En hennar mesta áhugamál var þó söngur og hljóð-
færalist. — Það var hennar brennandi hjartansmál. —
Hvar sem hún var niðurkomin stofnaði hún söngflokk
og barðist fyrir honum. Hún var organisti í mörgum
kirkjum.
Skal hjer minst kenslustarfa Rannveigar: 1905, tveir
vetur í Hvítárbakkaskóla Sigurðar Þórólfssonar. Barna-
fræðsla í þrem stöðum í Skagafjarðarsýslu, austan vatna,
16 ár, tvö ár við barnaskóla í VesturjNoregi, eftir próf
frá Voss-skóla og kennarapróf hjer heima 1909. Þá kenn-
ari við Blönduósskóla 1919—21. Þá Grænland 1921—23.
Húsmæðrafræðsla við Blönduósskóla 1924—29. — Þá
ráðsmenska við mannmargt heimili á Sauðárkróki 1929
til 1939. Hafði mjög fríar hendur, kendi, stjórnaði söng
og tók þátt í fjelagsskap, tók föður sinn til sín. — Faðir
Rannveigar andaðist 1929, þá tók hún að sjer kenslu á
Staðarfellsskólanum eitt ár. — En 1940—1945 gerðist
Rannveig umferðakennari fyrir Samband norðlenskra
kvenna í húsmóðurfræðum, garðyrkju og að nokkru
leyti handavinnu. Þarna nutu hæfileikar Rannveigar sín
prýðilega, þarna tókst henni upp, laðaði að sjer eldri
og yngri, stofnaði söngflokka, flutti erindi. — í Skaga-
fjarðarsýslu kendi hún t.d. 1941 í 9 mánuði í 11 hreppum
(1. sept. til 1. júní. — 140 nemendur). — Sýslunefnd og
búnaðarfjelög kostuðu ferðir hennar, auk SNK. Þarna
fór Rannveig um allar sýslur Norðlendingafjórðungs,
þoldi vel þessar erfiðu vetrarferðir, var sterk og hraust,
hvíldi sig hjá mjer á milli í Mólandi í Glerárþorpi.
Kaupið var auðvitað af skornum skamti, en það ljet
Rannveg sig ekki miklu skifta, bara að verða að liði, jtað
var aðalatriðið. — En þessi umferðakensla var bæði mjög
vinsæl og mjög nauðsynleg, hefði aldrei átt að falla
niður.