Hlín - 01.01.1967, Page 97
Hlín
95
með öðrum orðum að spinna og tvinna sýnishorn og fá
ullarverksmiðjur í landinu til að framleiða band eftir því.
Þetta er ekki aðeins metnaðarmál, heldur ætti þetta að
vera okkur hagkvæmt hvað þjóðarbúskapinn snertir.*
Urn þessar mundir mun fræðslu-löggjöfin vera í end-
urskoðun, og þá fyrst og fremst skyldunámið. — Mjer virð-
ist að samfara þeirri endurskoðun þyrfti einnig að fara
fram heildarendurskoðun á handavinnukenslu. — Eins
og hún er í dag, tel jeg hana ekki vera miðaða við þroska
barna nema að litlu leyti. — Jeg mundi vilja leggja meiri
áherslu á efnisþekkingu. — Kenna börnunum að greina
ullina, þekkja t. d. hvað er tog og lrvað er þel, og hvernig
hægt er að gera ýmsa skemtilega og listræna hluti úr
þessum efnum. Loks rná bæta við sýnikennslu í meðferð
ullar og síðan að kenna þeim hagkvæmar aðferðir til nyt-
samra hluta, sem má auka með fjölbreytni eftir þroska
barnanna.
Fyrsta skilyrðið til þess að geta gert góða hluti úr
ákveðnu efni er auðvitað þekking á efninu sjálfu, að
þekkja möguleika þess. — Skilningur á þessu er því mið-
ur lítill í þessu landi enn. Þetta mikilvæga atriði gleym-
ist allt of oft hjá okkur. — Nágrannaþjóðir okkar gera sjer
jretta fyllilega ljóst og leggja mikla áherslu á að þetta und-
irstöðuitriði sje kent mjög vel. — Okkur vantar í þessu
landi skóla eða stofnun, sem gefur haldgóða og þjóðlega
mentun í þeim greinum, senr þróast hafa með þjóðinni
um aldir, en eru nú að líða undir lok. Þar á meðal er tó-
vinnan. Við verður að viðhalda og læra allar þær vinnu-
aðferðir, sem eldri kynslóðir hafa beitt við ullina, t. d. að
knippla úr handspunnu togi, svo að eittlivtð sje nefnt.
Bæta má síðan við þeim nýjungum, sem hugur og hönd
geta skapað.
Á Þjóðminjasafninu er mikið hægt að fræðast um ís-
* Hagstofa íslands segir, að band sje flutt inn fyrir 17 milljónir
króna, 70 tonn.