Hlín - 01.01.1967, Page 111
Hlín
109
unarsvið, að margir gera sjer ekki lengur neina ljósa grein
fyrir gildi þess. — Þó ætla jeg, að meðal kvenna, og þá
einkum húsmæðra, sje verulegur áhugi á garðyrkju. Þeirra
viðfangsefni er að prýða heimilin og framreiða daglega
hollan og hagkvæman kost fyrir heimilisfólkið. Þær finna
því best hvar skórinn kreppir í þessum efnum.
Það væri líka alrangt að taka afstöðu til þessa máls eftir
áhuga fólks alment. —Sje málið gott og gagnlegt skiftir
almenn afstaða til þess engu meginmáli.
Það skal fúslega viðurkent, að garðyrkja er ekki líkleg
til að valda neinni hagrænni byltingu í búrekstri einstak-
lingsins eða þjóðarbúskapnum, og að nokkru er hún al-
gerlega óarðbær. En hagkvæm matjurtarækt getur þó gef-
ið veruleg búdrýgindi og aukið stórlega heilnæmi fæð-
unnar í okkar grænmetissnauða landi. — Þó er það ef til
vill höfuðkostur garðyikjunnar, að hún er verulegt menn-
ingaratriði og ágætasta uppeldismeðal fyrir börn og ung-
linga. Um það verður því varla deilt, að aukin garðyrkja
er æskileg og nauðsynleg, en eigi eitthvað að þoka áfram
í þeim málum þarf fyrst og fremst að auka fræðsluna, og
spumingin verður því, hvernig það verði best gert.
Það sem mest á ríður, þegar ryðja skal nýjum baráttu-
málum rúm, er að skapa nógu mörg og sterk fordæmi, og
að þeir, sem einhverja viðleitni hafa til framkvæmda, fái
þann siðferðilega stuðning, sem nauðsynlegur er. — Til
þess að auka veg garðyrkjunnar er því nauðsynlegt að
geta veitt nægilega mörgum þá þekkingu og æfingu í garð-
yrkjustörfum, að völ verði á brautryðjendum í sem flest-
um sveitarfjelögum.
Eðlilegast virðist því, þegar á alt er litið, að stofnsetja
sjerstakan garðyrkjuskóla fyrir garðyrkjufræðsluna. Skól-
inn þarf að vera heimavistarskóli, vel settur hvað sam-
göngur og markað áhrærir og hafa góða aðstöðu til alhliða
garðyrkju í köldum jarðvegi. — Virðist ekki óeðlilegt að
skólanum yrði valinn staður um miðbik Norðurlands.