Hlín - 01.01.1967, Page 121
Merki Þuríðar formanns enn á lofti haldið.
Gvendarbás heitir lendingarstaður sunnan Kaldbaks,
milli Húsavíkur og Saltvíkur. — Þaðan var útræði áður
en farið var að róa að marki frá Húsavík. — Fram að síð-
ustu aldamótum var þar tvístæðu verbúð.
Sveinsína Sveinsdóttir hjet þingeysk kona, sem átti einn
son, er hún hafði á framfæri sínu. — Sveinsína var dugn-
aðarkona, sem ekki ljet sjer alt fyrir brjósti brenna. —
Sparaði hún sig hvergi, þegar um það var að ræða að
bjarga sjer.
Þótti það í frásögur færandi, að hún gerðist háseti á
bátum, sem rjeru úr Gvendarbási og ötul við róðrana.
Ekki er kunnugt, hve lengi hún stundaði sjóinn, en
um þetta leyti mun það hafa verið eindæmi hjer um slóð-
ir, að konur rjeðust til sjóróðra, nema ef til vill í Flatey.
Það var ekki venja, að konur sæktu sjóinn. — Þeirra
starfssvið þótti vera í landi og fyrst og fremst innan bæj-
ar. — Gafst konum því sjaldan tækifæri til að sýna til
hvers þær dugðu við sjósóknina. — En vitað er, að á öll-
um tímum hafa verið uppi sannir kvenskörungar, sem
þóttu karlmannsígildi til verka, ef þær snjeru sjer á ann-
að borð að þeim störfum, sem karlmenn einir unnu að
jafnaði.
Okkar tímar eru á þessu sviði frjálsari en fyrri aldir. —
Það er minna spurt að því nú hvað eigi við. — Fremur að
spurt er um það til hvers hlutaðeigandi dugi, og þá hafa
jafnt konur sem karlar ánægju af að sýna getu sína og
framtak.
Lengi hefir verið vitnað til Þuríðar formanns, þegar
talað er um kvenskörunga, sem hafi farið í karlmanns-