Hlín - 01.01.1967, Page 145
Hagleiksmenn í Vatnsdal.
Gnðrún Björnsdóttir frá Komsá skrifar:
Áhugi ritstjóra „Hlínar“, Halldóru Bjarnadóttur, fyrir
íslenskum heimilisiðnaði er alkunnur. — Um langt skeið
var hún handavinnukennari við Kennaraskóla íslands og
ráðunautur almennings í heimilisiðnaði. — Tóvinnu-
skólann á Svalbarði stofnaði hún og fjölmargar sýningar
á íslenskum heimilisiðnaði hefur hún haft hjerlendis, —
á Norðurlöndum og í Ameríku.
Nú vill hún ekki skiljast svo við „Hlín“ að fullu, að
ekki sje brugðið þar upp ofurlítilli mynd af því hvernig
heimilisiðnaður dafnaði og þreifst í íslenskum sveitum,
áður en vjelaöldin hóf innreið sína að nokkru ráði, og
meðan hann er ekki svo með öllu útdauður, að enn þá
skilst hvað við er átt, þegar talað er um íslenskan heim-
ilisiðnað, — en það verður varla lengi eftir tilkomu sjón-
varpsins.
Halldóra Bjarnadóttir er fædd í Ási í Vatnsdal og í
dalnum sleit hún barnsskónum. — Það kann að vera, að
átthagatryggðin ráði nokkru um, að henni virðist nú,
sem Vatnsdalurinn muni hafa átt óvenju marga hagleiks-
menn, og þangað sje því gott að sækja dæmi um fyrir-
myndar heimilisiðnað, en fleiri rök nrunu þar þó til
koma.
Það hygg jeg ekki ofmælt, þó sagt sje, að Vatnsdalur-
inn hafi á síðari hluta 19. aldarinnar og fram yfir alda-
mótin verið nokkurskonar menningarmiðstöð Húna-
vatnssýslu. — Þar sátu þá yfirvöld sýslunnar: Björn Blön-