Hlín - 01.01.1967, Page 176
174
Hlín
Fyrirtækið byrjaði í kjallara í Greenwich Willage í
New York, og stofnfjeð var 5.600 dollarar, sem voru
fengnir að láni. — Upplagið var fyrst 1500 eintök. — En
heildarvelta fyrirtækisins á árinu sem leið var þrettán
milljarðar íslenskra króna. — Og riú eru 8.200 ritstjórar
og starfsmenn í þjónustu blaðsins.
Grundvallarreglur ritstjórnarinnar hafa ekki breytst
neitt frá því blaðið var stofnað fyrir 45 árum. — J>ví hefur
verið lýst sem handhægri biblíu fyrir almenning, enda
hefur það í 44 ár skapað heimsmynd og lífshætti fólks í
þeirri mynd, sem hinn 76 ára gamli útgefandi, Dewitt
Vallace og konu hans, vilja.
Regla blaðsins er að flytja ekki frumsamdar greinar,
heldur aðeins úrval úr öðrum tímaritum.
H.
AÐ RÆKTA GULRÓFUFRÆ í REYKJAVÍK.
Allir gamlir Reykvíkingar muna eftir „Fræstíunum", sem vóru
við fjölmörg hús hjer í bænum fyrir 30—40 árum síðan. Nú eru
allir hættir að rækta gulrófufræ, og höfum við til skamms tíma feng-
ið það alt frá útlöndum eins og annað — eða flest annað, sem hægt
var að fá þaðan. — En sú var reyndin á, að útlenda fræið var ekki
eins árvist og það heimaræktaöa, og gaf heldur ekki eins góða upp-
skeru.
Því eru menn hættir að rækta fræið, sem þeir vóru komnir á gott
lag með? Ekki tók ,.stían“ mikið rúm í garðinum, nokkrir rimlar
í kring um stangirnar í einu horninu. Það var alt og sumt. — A
stöku stað á landinu hefir fræræktin aldrei lagst niður.
Sæmundur Einarsson, Stórumörk undir Eyjafjöllum ræktaði mik-
ið fræ og seldi víðsvegar um land. — Hann sagði, að gulrófufræ
hefði verið ræktað undir Eyjafjöllum og í Fljótshlíð í 70 ár með
góðum árangri.
Vilja ekki einhverjir Reykvíkingar fara að rækta fræ heima hjá
sjer eins og i gamla daga? Það var einkum Vesturbærinn, sem hafði
orð á sjer fyrir gott fræ.
Reykvlkingur.