Hlín - 01.01.1967, Síða 202
200
Hlin
Brjef dr. Skúla:
Árósum 21. 2. 51
Halldóra Bjarnadóttir, Akureyri:
Kærar þakkir fyrir ársritið „Hlín“, sem jeg fjekk fyrir
fáum dögum. — Jeg hefi lesið það alt mjer til mikillar
ánægju. —Þetta er meira menningarrit, en mörg þessi
nýju tímarit, sem út koma í Reykjavík, og sem stundum
berast okkur í hendur hjer utanlands.
Jeg ætla að vona að þetta rit yðar sje útbreytt og víð-
lesið heima. — Það andar einföldum, íslenskum blæ á
móti manni, og það finst okkur útlögunum hlýtt og
gott.
Svo þakka jeg yður fyrir vinsamleg ummæli um bók
mína. — í öllum bænum reynið þjer að koma tillögu yð-
ar um rannsókn á hannyrðum til forna í framkvæmd. —
Það mun fara eins og fyrir mjer, að ótalmargt má finna,
ef vel er leitað og rjett skilin hálfkveðin vísa. — En mað-
ur má ekki láta málfræðingana og sögumennina aftra
sjer frá að taka verkefnið fyrir. — Þegar jeg, fyrir mörg-
um árum síðan, fór að grúska í mataræðinu, sögðu nor-
rænufræðingarnir, að ekkert væri að finna um þesshátt-
ar. — Seinna urðu þeir að viðurkenna, að verkefnið væri
þess vert að rannsaka bæri, og veittu þeir mjer svo ýmsa
ómetanlega aðstoð.
Jeg á hjer aðallega við Finn gamla Jónsson, prófessor,
sem að mörgu leyti ber höfuð og herðar yfir fræðimenn
á þessu sviði.
En verkefnið verður ekki leyst nema maður hafi að-
gang að góðum bókasöfnum og handritum, sem ekki
hafa verið gefin út.
Þetta er geysimikið verk, og get jeg best dæmt um
það. — Og það má ekki leggja út í það nema verkið sje
unnið til hlýtar. — Eitthvert kák er verra en ekki neitt.
Nokkurn stuðning má hafa af bók minni, að því er heim-
ildarrit snertir.
Þetta er í rauninni þjóðernisskylda.