Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 230
228
Hlin
Ingibjörg Dagsdóttir, Seljossi, skrijar:
Nú er klæðið íagra, með blómunum £rá Stóranúpi, komið frá Los
Angeles við Kyrrahafið —. Anna frændkona mín skrifar með klæð-
inu: íslenska sæmileg, hugsun og rithönd sjerlega fallegt. — Ingi-
björg, móðir hennar, skrifaði mömmu stöðugt, skáldleg og falleg
brjef á hreinni og ómeingaðri íslensku.
Jeg vildi helst koma teppinu á Bygðasafn hjer. Mjer finst það
eiga þar heima. — Bygðasafnið er stórhýsi, má segja, þó þegar full-
setið. — Þar er Hjeraðsbókasafnið til húsa, einnig stór stofa, þakin
málverkum, eftir Ásgrím Jónsson, gefin Árnessýslu a£ erfingjum
hans. — Mikið dýrmæti. — Þar sem ekki var gert, ráð fyrir málverks-
gjöfinni, þrengdi að safngripunum, þar er fullsetinn bekkurinn, og
líka margt til, sem ekki kemst fyrir. — Annars er gripunum vel fyrir-
komið, og ekki ofhlaðið. — Þar er plógur frá Ólafsdal, sem faðir
minn átti, og plægði með í gamla daga, smíðaður af Torfa. — Fal-
legt myndasafn lækna, presta og prófasta, sem dvalið hafa í sýsl-
unni og myndir voru til af. — Þar á afi minn, Brynjólfur frá Minna-
Núpi, ofurlítið horn, með stórri mynd yfir skrifpúlti hans, og þar á
hlutir, er hann átti, t. d. sjerlega fallegur göngustafur, útskorinn úr
hvalbeini.
Skúli G. Bjarnason, Arnesingur, i Los Angeles, skrifar:
Þökkum þjer kærlega brjef, og blöð —. Hef sjeð lát Gísla John-
sen, Niels Dungal, Sigurðar Jónassonar og síra Bjarna Jónssonar. —
Þekti þá alla persónulega.
í ein 15 ár skrifaði Niels mjer stöðugt, var það eins og að fara í
íslensku tíma að fá brjef hans. — Hann var óspar á að miðla af
mentun sinni og visku, án þess að láta mann finna, að hann stæði
svo hærra í mannfjelagsstiganum. — Jeg á skemtilegar minningar
um hann á íslandi, Los Angeles, San Fransisco, Vancouver, Palm
Spring og Arisona. — Hann var eins duglegur og hann var skemti-
legur.
Helga Jónasdóttir Paul, frá Húki í Miðfirði, systir Sigurðar Jón-
assonar, símaði til min um lát bróður síns. — Helgu hef jeg þekt
síðan hún kom frá íslandi 1913. í 40 ár vann hún við símakerfi Los
Angeles borgar, nú látin af störfum, býr 90 mílur út í eyðimörku,
gift í 3. skifti, mjög vel efnum búin. — Ágætur Húnvetningur, ís-
lensk í anda.
Jafnaðar-manneskja skrifar:
„Morgunblaðið birti nýlega myndir af frjettariturum sínum um
land alt. — Er það fallegur hópur. — Nógu gaman að senda svona
blað til útlanda, í því skyni að sýna svipmót manna a£ öllu landinu.