Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 129

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 129
TMM 2012 · 2 129 Úlfhildur Dagsdóttir Óreiða, eldgos og illska Guðrún Eva Mínervudóttir: Allt með kossi vekur, JPV 2012 Fyrir rúmlega hálfri öld hélt franski fræðimaðurinn Georges Bataille því fram að bókmenntir væru illar og að það væri best fyrir þær að viðurkenna það strax.1 Hvað hann nákvæmlega meinti með þessu er kannski ekki alveg ljóst, í aðra röndina var hann að mótmæla hug- myndum um upphafinn ‚hreinleika’ list- ar listarinnar vegna, en trúarbrögð komu inn í þetta líka, en Bataille áleit að bók- menntir (og listir almennt) hefðu komið í stað trúarbragða – og þá jafnvel sem einhverskonar vanheilög fórn. Bataille var líka gamall súrrealisti og höfundur frægrar klámsögu, Sögu augans (1928, ísl. þýð. 2001) og sem slíkur upptekinn af því að bókmenntir ættu að ganga fram af fólki og samfélagi, valda ónæði og truflunum. Og í því felst einmitt illskan. Bataille notar orðið illska til að ögra og vekja til umhugsunar, illskan er vopn til að rífa tilveruna upp úr hjólförum van- ans, þó það kosti veltur. Verðlaunaskáld- saga Guðrúnar Evu Mínervudóttur, Allt með kossi vekur (2011), fjallar meðal annars um illsku og hvernig hún tengist einmitt sköpuninni, sjálfum sköpunar- kraftinum.“ Sagan hefst á einskonar útgáfu Biblíu- sögunnar af Adam og Evu í aldingarðin- um og fallinu fræga. Sú saga birtist okkur í myndasöguformi og bókin inni- heldur að auki aðra myndasögu og eina myndskreytta sögu, en þær eru allar teiknaðar af Sunnu Sigurðardóttur. Það er einmitt myndasöguhöfundur sem er ástæða þess að sögumaðurinn Davíð segir söguna sem birtist okkur í Allt með kossi vekur, en hann fær sendar eigur stjúpföður síns, Þorláks eða Láka, sem dáinn er fyrir nokkru. Meðal papp- íranna eru nokkrar myndasögur, en Láki var þekktur myndasöguhöfundur, bæði á Íslandi og erlendis. Láki var sambýlis- maður móður Davíðs, Elísabetar, hún er listakona og telur sig hafa skynjað eins- konar kraftbirtingarhljóm listarinnar við það að vera kysst af ungum manni þegar hún var sjálf unglingsstelpa, koss- inn hafi breytt sér og gert sig að lista- konu. Og það sem meira er, hún telur að hún geti borið þennan koss áfram, gefið hann öðrum sem eru tilbúnir til að taka við samskonar upplifun. En einn þeirra sem hún gefur þessa gjöf bregst ekki við sem skyldi. Vissulega hefur kossinn mikil áhrif á hann en þau eru frekar til hins verra og er saga þessa manns, en þó einkum konu hans Ingi- bjargar, sem er gömul vinkona Elísa- betar, stærsti hluti þeirrar sögu sem Davíð segir. Ingibjörg, eða Indi, er grát- gjörn kona með kaupæði á háu stigi, en maður hennar, Jón, er þó enn skrýtnari karakter. Hann er einnig haldinn þrá- hyggju, þolir ekki að hafa hluti í kring- um sig. Því bregður hann á það ráð að byggja hillur uppi við loft í öllum her- bergjum íbúðar þeirra Indi og þar hleður hann öllum lausamunum: „Indi hafði engu logið. Heimili þeirra Jóns minnti á vísindaskáldskap. Þyngdaraflinu var storkað af slíkri einurð að Elísabet óttað- ist að líða upp í loft ef hún gætti sín ekki. D ó m a r u m b æ k u r
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.