Úrval - 01.10.1947, Qupperneq 124
122
TjRVALi
Því var eins varið með Jesú.
I sama bili og Júdas kyssti hann
á kinnina, hefir hann endur-
heimt sálarró sína og yfirburði.
Svo hefir hann borizt áfram í
voldugri bylgju, sem að lokum
bar hann út í dauðann. Hún hef-
ir risið svo máttug í huga hans,
að hann hefir aldrei bifast eða
svignað þaðan í frá. Þegar
hann stóð andspænis böðlum
sínum, var hann ekki lengur af
þessum heimi. Honum hefir
fundizt hann vera svo frjáls og
upphafinn, að hann hefir ekki
getað séð þá með mannlegum
augum, heldur hefir hann litið
þá með ósegjanlegri yfirburðar-
kennd og umburðarlyndi, sem
ávalt er því samfara, þegar
maður getur eygt hin þröngu
sjónarmið, sem aðrir hafa og
breyta eftir.
Maður sér heiminn frá nýju
sjónarmiði, hátt hafinn yfir það
sem nefnt er þjáningar og ótti.
Maður getur ekki heldur hatað.
Þeir, sem eru manni nákomnir,
eru f jarri á slíkum augnablikum
og maður getur aðeins hugsað
hlýlega til þeirra í svip, en
helgustu hugsjónir vaxa, sálin
og hugsjónirnar verða eitt.
Jesú fann gervallt líf sitt lifa
á ný í hinni síðustu, magn-
þrungnu einbeitingu alls hins
máttugasta, sem í honum bjó.
Óttinn kemur innanfrá, og ef
maður reynir um of að gera
mann óttasleginn, getur svo
farið, að hann komist út fyrir
takmörk óttans, að sálarástand
hans verði þannig að kvalararnir
nái ekki til hans.
Nú eru páskar, og ég hefi
fengið matarböggul frá Nis í
dag — það var indælt.
Ég skrifaði í gær, að maður
væri svo yfir allt hafinn á slík-
um augnabiikum, að maður gæti
aðeins sent nánustu vinum
hlýjar hugsanir í svip, en helg-
ustu hugsjónir yxu og yrði öllu
ráðandi í sál manns. Þú mátt
nú ekki misskilja mig, því að
þetta er ekki satt, en varðveittu
áhrifin sem þetta hefir haft, og
lestu svo áfram og láttu áhrifin
renna saman, þá skilst það
kannske betur.
Á slíku augnabliki er maður
eins og stórt, titrandi dýr, sem
er algerlega hreint. Það er eng-
inn skuggi, ekkerthaturogengin
reiði, því að slíkt getur ekki
dafnað í algerum hreinleika og
einfaldleika. Það er eins og
hjartað opnist og lítill, grænn
sproti byrjar að vaxa. Á slík-
um augnablikum er maður