Studia Islandica - 01.06.1976, Side 68
66
sér og til að hefna sín á þeim stelur hann hjóli eins þeirra
og rennir því fram af hryggju. Hann er sendur í sveit, og
í sveitinni skrifar hann ritgerð, sem vinnur verðlaun í
samkeppni timaritsins Yorsins, ferð til Kaupmannahafnar
og heim aftur. Fjársterkur aðili kostar uppskurð á fæti
Gauks í Kaupmannahöfn og drengurinn kemur óhaltur
heim. Úr föðurleysi Gauks rætist einnig, eins og áður hef-
ur verið minnst á, því að faðir hans kemur óvænt heim eftir
meira en áratugar fjarveru.
Aukapersónur eru bæklaðar í þremur sögum, en ekki
rætist eins glatt úr vanda þeirra og vanda Gauks. Þeir
fá ekki hæklun sína læknaða. Daði, vinur Brodda í 232 og
234, er haltur eftir gamalt slæmt fótbrot. Hann á fáa að.
er föðurlaus og á heilsulitla móður, en með hjálp góðra
manna kemst hann í nám í útskurði og framtíð hans er
trygg. Hann reynist hafa listræna hæfileika.
Framtíð Haralds, krypplingsins í Mamma skilur allt
(237), er ekki eins hjört. Foreldrar hans eru blásnauðir,
en Haraldur hefur þó von um að komast í skóla, þegar
fjölskyldan flyst til Reykjavíkur. Eftir að þau flytja fær
lesandi engar fréttir af Haraldi, hann efnir ekki loforð
sitt við Hjalta um að skrifa honum.
6.3 Auðvitað vantar ýmis vandamál í bamabækumar,
sem algeng em á heimilum. Eitt af því helsta er þó líklega.
að samband foreldra mun vera töluvert betra þar en í
veruleikanum. Eins og áður sagði kemur hjónaskilnaður
aðeins fyrir í Kötlubókunum (328—31), og vom hjúskap-
arslit þó alls 650 á ámnum 1961—’65 og 776 milli 1966
og 1970.!) En ekki þarf endilega að koma til skilnaðar.
Fjöldi barna hlustar á foreldra sína karpa og rífast án þess
að verða skilnaðarbörn. Stefán Jónsson hefur gert þessu
efni afbragðsgóð skil í sögunni Fólkið á Steinshóli, en hún
kom út 1954 og kemur því ekki með í þessa rannsókn.
1 kaflanum um persónumar (2.2) kemur fram, að al-
1 Hagtíðindi, gefin út af Hagstofu Islands, 58. árg. Nr. 7, júlí 1973.
bls. 125.