Goðasteinn - 01.09.1999, Page 16
Goðasteinn 1999
fjölkvænismann, setja þá í fangelsi,
dæma þá í stórar sektir o.s.frv. En allt
kemur fyrir eitt, því Herrans lög eru
yfir staðarins lögum. Það er ekki langt
þangað til það verður Ijósara.“ Svo
segir Þorsteinn Jónsson í bréfi til Jóns
Borgfirðings 22. nóvember 1886.
Horfnar kynslóðir og ættfræði
Mikilsverður þáttur í mormónatrú
var skírn látins fólks. Mormónar telja
unnt að tryggja sálinni fullkomnustu
upphafningu í guðs ríki með því að
skírast fyrir hana, þó að áratugir eða
aldir séu liðnar síðan hún átti sér bú-
stað í jarðneskum líkama. Til þess að
svo megi verða er nauðsynlegt að
þekkja nöfn hinna dánu, fæðingardaga
þeirra og dánardaga og þessi nauðsyn
hefur vakið með mormónunum brenn-
andi áhuga á ættfræði. Strax á fyrstu
árum íslenskra mormóna í Utah tóku
þeir að spyrja bréfavini sína hér heima
um ættir, fæðingar- og dánardaga, og
enn í dag stunda þeir ættfræðirann-
sóknir og sálnaskírn af kappi. Til
dæmis má nefna að Þorsteinn Guð-
mundsson, síðast bóndi á Lágafelli,
sem fæddur var um 1724 og dó 28.
október 1803 var skírður þann 7. júní
1961 og skírnin staðfest með vottum
26. júlí sama ár. Sálir konu hans og
tveggja sona nutu sömu náðar og voru
jafnframt innsiglaðar eiginmanni og
föður.
Islenskir ættfræðingar hafa ærna
ástæðu til að gleðjast yfir þessum
áhuga trúflokksins á horfnum kyn-
slóðum. Mormónar af íslenskum ættum
komu íslenskum kirkjubókum á filmur,
sem aðgangur er að á Þjóðskjalasafni
og héraðsskjalasöfnum og þeir tölvu-
skráðu næstum allar fæðingar eða
skírnir, giftingar og dauðsföll sem getið
er í kirkjubókunum frá upphafi og til
ársins 1870. í þann fróðleiksbanka er
margt að sækja.
/
Heimildir um Islendinga í Utah
Danskættuð kona í Utah að nafni La
Nora Allred hefur einnig tekið saman
æviágrip Islendinganna sem settust að í
fylkinu, leitað fanga í bæði íslenskum
og bandarískum skrám og ritum og
skrifað fróðlegar frásagnir af lífi land-
nemanna. í mars 1998 gaf íslendinga-
félagið þar í byggð frásagnir þessar út í
120 síðna fjölriti sem ber nafnið The
Icelanders of Utah. Þar er getið 355 Is-
lendinga sem með vissu settust að í
mormónaríkinu og óljósar heimildir
eru um 16 til viðbótar. Raunar er víst
að sumir þeirra fóru aldrei alla leið.
I bók sinni Gekk ég yfir sjó og land
segir sr. Kristján Róbertsson margt af
örlögum flestra Utahfara. í samantekt
þeirri sem hér fer á eftir er að sönnu
sumt af því endurtekið, en einkum
greint nokkuð frá því sem íslenskar
kirkjubækur og La Nora Allred hafa
frekar að segja um nokkra Rangæinga
úr hópi Utahfaranna og fjölskyldur
þeirra.
Fjölskylda Samúels Bjarnasonar
Samúel Bjarnason fæddist á
Reyðarvatni 22. apríl 1823, óskilgetinn
sonur Bjarna Jónssonar og Margrétar
-14-