Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1891, Blaðsíða 171
171
eða frumgervi, og í því liggur sellukjarninn, hnöttóttur
eða lítið eitt aflangur smálíkami, þjettari í sjer og
nokkuð öðru vísi að byggingu og eðlisfari en sjálft
prótoplasmað. Prótoplasmað er þýðingarmesti hluti
sellunnar, við það er allt líf, allt innra lífstarf plönt-
unnar bundið, það er frumstofn allra lifandi hluta,
frummynd eða frumgervi lífsins á jörðunni. Hinar
lægstu og frumlegustu lifandi verur bæði í plöntu-
og dýraríkinu eru að eins örsmáir prótoplasma-
kekkir með kjarna innan í eða með öðrum orðum
hýðislausar eða naktar sellur, er hreifa sig sjálfkrafa
frá einum stað í annan. A þessu frumstigi er sellan
öldungis sjálfstæð lífseining. Hjá hinum æðri
plöntum, sem samsettar eru af miljónum af sellum,
er hver sella að vísu lífseining fyrir sig, en þó meira
eða minna háð hinum öðrum sellum, er í sambandi
við hana mynda lífsheildina, mynda plöntulíkamann,
því þar er sellum hvers einstaks líkamsparts ætlað
sjerstakt starf, og eptir því hefur bygging þeirra og
eðli lagað sig, svo þær geta ekki eða eiga örðugt
með að gegna öðru starfl. Sje það starf, sem ein-
hverjum sellum er ætlað, þýðingarmikið, getur líf
plöntulíkamans í heild sinni verið í veði, ef truflun
eða hindrun kemst á starfsemi þeirra, t. d. ef sellur
þær, sem rótin er samsett af, hætta að geta unnið
ætlunarverk sitt, þá getur það orðið til þess, að öll
plantan deyi, því þá hefur hún ekki ráð með að ná
næringu úr jörðunni, þótt allar aðrar sellur líkamans
sjeu ófatiaðar. — Hinum æðri margselluðu plöntum
hefur opt verið líkt við ríki, og er það einkar-heppi-
leg samlíking; hinar einstöku sellur eru borgararnir,
er svo aptur skipast í ýmsa flokka eða fjelög eptir
starfi því er þær inna af hendi; þannig eru surnar
rótarsellur, sumar blaðsellur, sumar stöngulsellur,