Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1891, Blaðsíða 258
268
vitnar til sem heimildarrita neðan við æfiágripið og-
ekki heldur í neinum áreiðanlegum heimildarritum, sem
oss eru kunn. I Nyerup er ekki minnzt á, hvaðan hann
sé útskrifaður, en í Worm I 185 er hann talinn út-
skrifaður úr Hólaskóla 1715, sem er alveg rétt. I
gömlum skólaröðum frá Skálholti, sem til eru í
handriti (Lbs. 207 4to) er Halldórs biskups hvergi
getið á þessum árum, og sézt bezt af því, að hann
hefur aldrei gengið þar í skóla. Líklega hefur dr.
Kaalund ímyndað sér, að þarna hefði hann fundið
laglega villu hjá Worm, því að það gæti ekkiverið
rétt, að Halldór biskup hefði lært í Hólaskóla, þegar
hann var fæddur og uppalinn á Vesturlandi eða í Skál-
holtsbiskupsdæmi. Eins og dr. Kaalund hefur tek-
izt óheppilega með þessa lagfæringu, eins hefur hon-
um skjátlazt í öðru atriði um Halldór biskup, þegar
hann segir, að hann hafi siglt til Hafnar, til að leita
sér lækninga, en ekki fengið bót meina sinna og
andazt meðan hann dvaldi þar. En þetta er alveg
ranghermt, því að biskup andaðist á útsiglingu héð-
an1 í Eyrarsundi 28. október 1752, og var því bor-
inn látinn á land í Höfn, svo að eigi þurfti hann
þar að dvelja sér til lækninga(I).
Auk þessa ranghermis er æfiágripið í heild sinni
allfátæklegt og lítið á því að græða. Þar er t. d. ekki
minnzt á, að hann hafi lesið við háskólann né tekið
próf í guðfræði, enda er þess ekki getið, hvorki hjá
Worm eða Nyerup, og þá er varlavon, að dr. Kaa-
lund viti betur, er lætur hann verða prest á Ut-
skálum þegar eptir burtfararprófið úr Skálholtsskóla(!).
1) Sbr. annálsbrot í safni Jóns Sigurðssonar á landsbóka-
safninu 29 fol. P. P. Hist. eccl. bls. 491, þar sem sagt er, að
bann baB. andazt á leiðinni (in itinere) o. fl.