Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1891, Blaðsíða 257
257
hér hefur verið talið, má sjá, að þetta æflágrip er
liæði ramskakkt og harla ófullkomið að öðru leyti.
I æfiágripi dr. GUsla Brynjólfssonar prests á
Hólmum (III, 189) telur dr. Kaaluud fæðingardag
hans 28. ágúst (1794), og hefur hann tekið það eptir
Erslew Forf. Lex., en réttara mun, að hann sé fædd-
ur 29. ágúst, eins og sagt er í burtfararvottorði hans
úr skóla, en í rauninni stendur það á litlu. Hann
segir einnig, að dr. Gísli hafl verið skipaður
prestur að Hólmum 1823, og er það að því leyti
rétt, að hann fékk staðfestingu konungs fyrirbrauð-
inu það ár, en veitingarbréfið er dagsett 7. janúar
1822, og hefði verið réttara að fylgja því.
I æfiágripi Halldórs biskups Brynjólfssonar (III
191) er sumt ónákvæmt og sumt skakkt. Það er t.
d. ónákvæmt, þegar sagt er, að Halldór biskup sé
fæddur á Saurum i Snæfellsnessýslu, með því að í
þeirri sýslu eru tveir bæir með því nafni, annar í
•Staðarsveit, en hinn í Helgafellssveit, en það hefur
dr. Kaalund verið ókunnugt um, sem vel má virða
til vorkunnar, þar eð önnur prentuð rit, sem geta
um fæðingarstað Halldórs biskups, eru heldur ekki
nákvæmari í þessu efni. En vér getum fært rök
að því eptir handritum, að hann var fæddur á
•Saurum í Helgafellssveit en ekki á Saurum í Stað-
arsveit1. Að hann sé útskrifaður úr Skálholtsskóla,
•eins og dr. Kaalund segir, er alveg rangt og vitum
vér ekki, á hverju hann hefur byggt það, því að
hvorki stendur það hjáWorm né Nyerup, semhann
1) Þannig er t. d. beinlínis sagt í prestaæfum Hálfdans
Einarssonar (Presbyterologia): Bps. 67 fol. á landsbóka-
safninu (tekib eptir bréli frá síra Ólaíi bróöur Halldórs
biskups).
17