Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1891, Blaðsíða 236
236
sannara, að brjóstveiki karlinn gæti eigi afborið kvef-
veikina, þá er eigi heimilt að álykta sem svo: ,af
þvi að karlinn brjóstveiki dó, hefir hann dáið úr kvef-
sóttinnb. Vér getum einúngis sagt svo, ef vér vitum
að karlinn hefir tekið kvefsóttina. Fleiri eru dauða-
mein brjóstveikra manna en kvefsótt einsaman. Af
sömu ástæðum getum vér heldr eigi sagt: ,af því að
þessi karl hefir eigi fengið kvefveikina, deyr hann
eigi'.
Af þessum fjórum skilyrtu málsgreinum eru þá
tvær leyfilegar eðr sjálfsagðar: 1. Játun skilyrðis.
er játun hins skilyrta og 2. neitun hins skilyrta er
neitun skilyrðis, með því að sérhver orsök hefir af-
leiðíng sína, og enginn hlutr verðr orsakalaust. Aðr-
ar tvær eru nálega ætíð óleyfilegar eðr heimildar-
lausar: 3. Játun hins skilyrta er ógild játun tiltek-
ins skilyrðis og 4. neitun tiltekins skilyrðis er ógilcf
neitun hins skilyrta.
Vanalega er skilyrt málsgrein orðuð svo, að
báðir liðirhennar eru jákvæðir. 1. ,Ef margir flytja.
héðan af iandi brott, rénar vinnukraftrinn ogvinnu-
afiinn að þvf skapi'. En skilyrtar málsgreinir eru
enn orðaðar á þrjá vegu, svo þær eru fernskonar alls>
2. ,Verði uppreistin eigi sefuð, er vald stjórnarinnar
farið'. Svo sem þegar var sagt, er rétt að breyta.
málsgrein þessari einúngis á þessa tvo vegu: ,Upp-
reistarmennirnir hafa unnið sigr, og stjórnin hefir
því lagt niðr völdin', og ,stjórnin heldr völdum sin-
um, fyrir því hefir uppreistin verið bæld niðr*.
3. ,Ef legan er lögð, kemst skipið eigi inn á höfnina'*
Málsgrein þessari má breyta þannig: ,Legan er lögðr
svo skipið kemst eigi inn á höfnina' og skipið kemst
inn á höfnina, af þvi að legan er eigi lögð'. 4. ,Ef
landsstjórnin hefir enga skattheimtumenn, munu