Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1891, Blaðsíða 233
233
menn eru englar'; snúið við eftir orðunum: ,englar
eru engir menn1. Þetta er eigi vanalegt mál, þótt
til sé, svo sem: ,neyð er enginn kaupmaðr. Rétt-
mælt alneikvæð málsgrein er: ,Engvir menn eru
engvir englar' — ,engvir englar eru engvir meniú.
Miklu örðugast er aðsnúavið sumneikvæðum máls-
greinum. ,Sumir menn eru eigi vitrir'. Merkíng
málsgreinarinnar er sú, að sumir menn sé útiluktir
úr flokki viturra manna, ef menn eru heild sú, er
,eigi vitrir4 eru deild af; en úr flokki allra viturra
verunda, ef ,eigi vitrir' eru miðaðir við allar verundir,
sem vel getr verið, af því að umsögnin er jafnan
altæk í sumneikvæðum málsgreinum. Léttust er sú
aðferð við sumneikvæðar málsgreinir, að gagnhverfa
þœr fyrst og snúa þeim síðan við. ,Sumir menn eru
eigi vitrir' gagnhverflst i: ,sumir menn eru heimsk-
íngjar', réttara, ,sumir menn eru sumir heimskíngjar',
er snýstvið í: ,sumir heimskíngjar eru sumir menn'.
Aðferð þessi er kölluð viðhverfíng með neikvæði eðr
gagnstæði.
Það segir sig sjálft að viðhverfing er engin álykt
heldr eingöngu endrtekníng. Hún er því gagnleg
eingöngu til þess að finna hvenær og hvernig máls-
greinir sé réttmæltar og því réttræðar. Mönnum er
mjög hætt við að ætla, að snúa megi við flestum, ef
eigi öllum, aljákvæðum málsgreinum, auk heldr öðr-
um, rétt eftir orðunum, og er það meira en von, því
allir hyggja að þeir tali rétt og orðfult mál, þá er
þeir tala alvanalegt mál. En þvi er eigi þannig varið.
Dæmi: ,Allir mótmælendr neyta rannsaksréttar skyn-
semi sinnar í trúarefnum'. En þessa sama réttar
neyta fleiri menn en mótmælendr einir, fyrir því er
rangt að snúa málsgrein þessari óbreyttri við þannig:
,Allir þeir er neyta rannsaksréttar skynsemi sinnar