Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1891, Blaðsíða 238
238
eru þeir, að upptalning liðanna er annaðhvort ónægr
eðr greining þeirra er skökk, svo að það er greint
sundr er fylgist að. Dæmi: ,Islendingar eru ann-
aðhvort miðlunarmenn eðr þeir vilja fá alinnlenda
stjórn'. Hér er ótalinn sá flokkr Íslendínga erhlut-
lauss er, og sá flokkr er hvorugt vill. Annaðdæmi:
,Sitt er hvað, gæfa eðr gjörfugleikh, er þýðir hið
sama sem: annað er gæfa en gjörfugleiki. Fleirræð-
ar málsgreinir fela 1 sér fjórar tilbreyttar málsgreinir,
og það þótt þær hafi eigi nema tvo liðu. Dæmi:
,Þú greiðir annaðhvort sektina, eða þú fer i fang-
elsið'. Málsgrein þessi tilbreytist þannig:
1. Ef þú greiðir sektina, ferðu eigi í fangeisið.
2. Ef þú greiðir eigi sektina, ferðu í fangelsið.
3. Ef þú fer í fangelsið, greiðirðu eigi sektina.
4. Ef þú fer eigi í fangeisið, greiðirðu sektina.
Eigi er greiníngin í fleirræðum málsgreinum fylli-
leg né fullgild, nema setja megi þær upp í þessar
fjórar málsgreinir, og þær reynist allar fjórar sann-
ar. Fyrir því er það einkaráð að prófa fleirræðar
málsgreinir á þenna hátt. Dæmi: ,Refsíngar eru
álagðar, annaðhvort til þess að hamla glæpum eðr til
þess að bæta sakamenn'. Próf: 1. ,Ef refsingin
aftrar glæpum, bætir hún eigi sakamenn'. Vér sjá-
um þegar, að greining þessi er eigi fuiisönn, enda
getr hvorttveggja: öftrun glæpa og betrun saka-
manna, verið samfara, og á að vera það. Vér segj-
um oftlega svo, til dæmis : ,Annaðhvort getr hann
eigi gjört það eðr hann vill eigi gjöra það‘. En hið
þriðja er og til, að 'hann hvorki vili gjöra það né
geti.