Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1891, Blaðsíða 249
249
er hér hafa verið nefndir, þar eð þessir menn hafi
ekki haft nein veruleg almenn áhrif á hag alls rík-
isins, og getur vel verið, að þetta megi til sanns
vegar færa um suma þeirra, er hann hefur sleppt,
en alls ekki um alla, og t. d. hvað síra Valdimar
snertir mun enginn geta neitað því, að hann hafi
talsverða »almenna þýðingu« og sé víðar kunnur en
í Stóranúpssókn eða um Arnessýslu.
En þótt dr. Kaalund hafi þannig sleppt ýmsum
látnum og lifandi Islendingum, er hann að vorri
ætlun hefði fyllilega getað nefnt og átt að nefna í
safni þessu, imyndum vér oss alls ekki, að það sé
sprottið af neinni fyrirlitningu á þjóð vorri, því að
ýms æfiágrip landa vorra, er hann hofur ritað í
þessum hluta safnsins, bera ljósan vott um velvild
og sanngirni, og sézt það einkum af dómum þeim,
er hann leggur á menn og gjörðir þeirra, sem víð-
ast hvar eru lausir við hleypidóma og hlutdrægni,
enda efumst vér ekki um, að hann hafi leitazt við,
að skýra svo satt og rétt frá öllum aðalatriðum,
sem honum var unnt. Það er að eins á stöku stað,
sem vér ekki getum fallizt á skoðanir hans, eins og
t. d. um Odd biskup Einarsson, er eptir hans frá-
sögn hefur verið einhver hinn mesti óþokki og enda
hneykslisbiskup, því að auk þess, sem hann telur
hann mjög eigingjarnan og ásælinn, ber hann hon-
um á brýn, að hann hafi dregið undir sig guðs-
þakkafé, gjört sig sekan í svívirðilegri frændahafn-
ing (grov Nepotisme), komizt í deilu við hina verz-
legu stjórn, sumpart vegna vináttu sinnar við Guð-
brand biskup og sumpart vegna sinnar eigin hegð-
unar o. s. frv. Þessi lýsing dr. Kaalunds á Oddi
biskupi er að sumu leyti ýkt og að nokkru leyti
alveg ósönn, eins og allir munu játa, sem nokkuð