Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1891, Blaðsíða 253
253
Kaalund annaðhvort hermir eitthvað skakkt, eða
«egir ónákvæmt frá.
I æfiágripi Jóns biskups Arnasonar (I 332—33)
hefði átt að geta þess, að hann andaðist 8. febrúar
1743. Dánarárið sést að eins í byrjun æfiágripsins,
en að öðru leyti er það ekki nefnt og mánaðardag-
urinn alls ekki, og þó er í formála safnsins skýrt
tekið fram, að dánarár og dag skuli jafnan nefna i
Æefisögunum, ef auðið sé, og hefur þetta því líklega
fallið úr æfiágripi Jóns biskups af gleymsku eða
vangá1.
• *
I æfiágripi Jóns sýslumanns Arnasonar (I 333),
•er faðir hans talinn Þorleifsson, en það er raugt,
því að hann var Þórðarson og bjó á Arnheiðarstöð-
um í Fljótsdal, en sá Þórður var son Árna bónda
Þorleifssonar á Móbergi í Langadal, ervar sonarson
■Jóns lögmanns Sigurðssonar á Reynistað. Hér hefur
því dr. Kaalund villzt í ættinni. Þetta æfiágrip Jóns
sýslumanns er mjög stutt og ófullkomið, þess er t.
d. ekki getið, úr hverjum skóla eða hvenær hann
hafi verið útskrifaður (hann var útskrifaður úr Skál-
holtsskóla 11. maí 17482), og ekki heldur þess, að
hann var skrifari ytra hjá Rantzau greifa, stiptamt-
1) Það er enn fremur ekki alveg rétt að orði komizt, að Jón
biskup haíi komið út hingað frá háskólanum um 1692, sem
cand. theol., því að hæði var á þeim tímum ekkihaldið neitt
reglulegt guðfræðipróf við háskólann og þeir sem þesSa próf-
nefnu töku, voru þá jafnan nefndir í attestati theol.« en
aldrei cand. theol., og það enda löngu eptir að regluleg próf
í guðfræði voru fyrirskipuð.
2) I hurtfararvottorðinu (testimonio) er hann beinlínis
talinn fæddur 1727, og þegar hann var skrifaður í stúdenta-
■tölu við háskólann 20. des. 1748, er hann talinn á 22. ári,
og mun 1727 því vera hið rétta fæðingarár hans, en ekki 1726,
sem dr. Kaalund jafnvel hyggur réttara.