Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1891, Blaðsíða 247
247
safni þessu finnst mér bæði rétt og eðlilegt, en eg
vildi, að fleiri skáld hefðu þá verið talin t. d. síra
Jón Bjarnason 1 Presthólum, síra Guðmundur Er-
lendsson í Felli, síra Olafur Einarsson í Kirkjubæ,
Árni Böðvarsson á Ökrum, Guðmundur Bergþórsson,
sira Snorri Björnsson á Húsafelli, síra Magnús Ein-
arsson á Tjörn, síra Hannes Bjarnason á Ríp, og
sérstaklega Þorvaldur prófastur Böðvarsson. Þegar vér
sáum nafn síra Jóns Egilssonar í þessu safni, datt
oss í hug, að vel hefði mátt nefna síra Olaf í Vest-
mannaeyjum, bróður hans, er i rauninni var engu
ómerkari maður, þótt hann ekki hafi ritað »Biskupa-
annála«, og að minnsta kosti dreif fleira markvert
á daga hans en síra Jóns. Þótt vér þannig höfum
talið ýmsa menn, er með réttu hefðu átt að takast
í safn þetta, viljum vér samt ekki ásaka dr. Kaalund
svo mjög, hvað þetta snertir, bæði af því, að ávallt
getur verið ágreiningur um, hverja eigi að taka í
þess konar ritsöfn og hverja ekki, og svo getum
vér einnig virt honum til vorkunnar, þótthann sem
útlendingur þekki ekki alla vora merku menn, og
geti ekki dæmt rétt um verðleika þeirra hvers um
sig, er hann kann að þekkja.
Þegar vér á hinn bógínn gætum að því, hverjir
núlifandi íslendingar hafi verið teknir í þessi 4 fyrstu
bindi safnsins, lítur svo út, sem fáir atkvæðamenn
séu nú uppi á landi voru, því að þeir eru að eins
tveir (síra Þórarinn í Görðum og síra Þorkell á
Reynivöllum), sem sá heiður hefur hlotnazt, að kom-
ast í safn þetta enn sem komið er1. Auðvitað verða
þeir fleiri áður en lýkur, en þeir, sem þegar er
1) Jón Árnason bókayörður (f 1888) var á lííi, þegar
æfisaga hans var rituð í safni þessu (I. B. bls. 334).