Studia Islandica - 01.06.1993, Blaðsíða 26
24
goða, á vegi þeirra, og hyggjast þeir hefna sín á honum fyrir
víg Þorsteins. Kolskeggur kemst undan og leitar ásjár Halls
Guðmundarsonar frá Ásbjarnarnesi í Víðidal, sem var í Nor-
egi í kaupferð. Hallur gefur honum skip og fé, svo að Kol-
skeggur kemst undan til Englands, en Hárekssynir beina þá
hefndinni að Halli og myrða hann í skógarrjóðri á eyjunni
Fólskn. Hárekssynir drukkna í hafi við Jótlandssíðu (13.
kap).
Guðmundur í Ásbjarnarnesi verður slíkum harmi lostinn
við fráfall sonar síns, að hann lifir eigi lengur en mánuð.
Barði, sonur hans, tekur við eftirmálum, en veit ekki, hvar
bera skuli niður um hefndir. Barði leitar ráða hjá fóstra
sínum, Þórarni á Lækjamóti, og hefjast þar með langar frá-
sagnir af ráðleggingum Þórarins og undirbúningi að drápi
Gísla Þorgautssonar á Gullteig (14.-26. kap.) í hefndarskyni
fyrir Hall Guðmundarson. í 14. kap. er greint frá því, hvernig
Þórarinn leggur á ráðin um að vísa á Gísla til hefnda og rétt-
læta víg hans. í lokum 15. kap. er frásögn Jóns Ólafssonar á
enda og skinnbókarbrot Heiðarvígasögu tekur við.
Undirbúningurinn að vígi Gísla á Gullteig er svo margþátta
og smásmyglislegur að of langt mál yrði að rekja þá sögu að
ráði, en þessi atriði eru helst: Hestarán og sverðstuldur (15.
kap.). Þórarinn telur upp fyrir Barða, hvaða menn hann skuli
hafa með sér í suðurför að drápi Gísla (16. kap.). Barði leitar
liðsinnis þeirra (17. kap.). Aflað er vista til fararinnar (18. og
19. kap.) og hrossum skilað (20. kap.). Barði safnar liði (21.
kap.), frýja Þuríðar, móður Barða, sem fellur af hestbaki í
Saxalæk (22. kap.). Heimanför Barða og leiðangursmanna
hans, ráðleggingar Þórarins, hvernigstaðið skuli aðliðskipan,
njósnum, næturgistingu, bardaga á Gullteig, heimreið o.fl.
(23.-25. kap.). Fyrirburðir og draumar Þorbjarnar Brúnason-
ar (26. kap.), dráp Gísla á Gullteig (27. kap.), liðsafnaður
sunnanmanna, reið Barða og félaga á Tvídægru, bardaginn á
heiðinni (28.-31. kap.). Heimreið. Barði safnar vistum og býr
sig undir vetursetu (32. kap.). Griðamál, eftirmáli á alþingi,
sættir (33.-35. kap.). Barði og félagar verða afturreka við
Siglunes og gista um veturinn hjá Guðmundi ríka á Möðru-