Studia Islandica - 01.06.1993, Blaðsíða 234
232
hefur vakið athygli á því, að Gnúpsdalur er dvalarstaður
Steingerðar og gististaður Kormáks, en Gnúpsdalur var
sömuleiðis gististaður Barða og þeirra félaga, þegar þeir fóru
til Heiðarvíga. Hefur þennan bæ áður borið á góma, því að
hann hefur sennilega aldrei verið til. Ástæða þykir mér að
geta orða Bjarna Einarssonar í þessu samhengi:
Þótt undarlegt kunni að virðast hermdu fornir rithöfundar oft
þvílík aukaatriði hver eftir öðrum auk þeirra hluta, sem meira
máli skiptu.1
Þessi athugasemd fær oft stoð af tengslum Heiðarvígasögu við
aðrar sögur, eins og imprað hefur verið á, en auðvitað er skylt
að láta ekki hugarflugið hlaupa með sig í gönur.
Að lokum skal minnst á Vatnsdælasögu. Um hana segir
Einar Ólafur Sveinsson:
Ekki er ólíklegt, að höfundi Vatnsdælu, eins og mörgum öðrum
Húnvetningum, hafi verið kunn Heiðarvíga saga.2
Máli sínu til styrktar bendir hann á líkingar í orðavali.3 Þor-
steinn Ingimundarson segir við bræður sína eftir víg föður
þeirra:
„Þat sýnisk mér ráð, at vér setimsk eigi í sæti fpður várs, hvárki
heima né í mannboðum, meðan hans er óhefnt,“ — ok svá
gerðu þeir ok sóttu lítt til leika eða mannfundi.4
Frásagan minnir á Heiðarvígasögu, þegar Barði settist í sæti
Halls, bróður síns. Sömuleiðis greinir sagan frá því, að
mannamót féllu niður í Vatnsdal og Víðidal, og er það vafalít-
ið í sambandi við hefndir eftir Hall.5 Sennilega er ritsamband
með Heiðarvígasögu og Vatnsdælu, eins og Einar Ólafur gat
sér til um.
1 Skáldasögur, 64; um frekari samsvaranir með Kormákssögu og Hvs. sjá
sama rit, 96, 101-102, 104-105 o.fl. Bjarni Einarsson telur líklegt, að Hvs.
^ hafi verið nokkrum sinnum ofarlega í hugá höfundar Kormákssögu.
" Vatnsdœla s.,\lii.
3 Vatnsdœla s., 104. Hvs., 291.
4 Vatnsdœlas., 63.
5 Hvs., 254, 262, 264.