Studia Islandica - 01.06.1993, Blaðsíða 249
247
Snorri goði höfðu vegið Þorstein Gíslason og son hans
Þorvarð,1 gekk annar sonur Þorsteins, Sveinn að nafni, níu
vetra gamall, út í dyrnar til að gæta að föður sínum. Var hon-
um „svefn í augum“. Og sagan heldur áfram:
Snorri mœlti við son sinn, Þórð kausa: „Sér kgttrinn músinal
Ungr skal at ungum vega.“ Þórðr, fóstri hans, mælti: „Þat skal
aldri ske, at svá ungr sveinn sé veginn, ok skulu vit undir eins
falla báðir.“ Segir Snorri hann skuli ráða, þó sér sé grunr, at sá
sveinn muni einhvers staðar hgggva í ætt sína.2
Spásögn Snorra goða um, að sveinninn muni síðar koma fram
hefndum, rætist ekki, og er það andstætt frásagnarvenju forn-
sagnanna. Þarf ekki annað en minna á þann fræga atburð, er
Helgi Harðbeinsson þerrði blóðugt spjótið á blæjuenda Guð-
rúnar Ósvífursdóttur og hafði sér til afbötunar, „at undir
þessu blæjuhorni búi minn hpfuðsbani41.3 Sá spádómur gekk
auðvitað fram. í Heiðarvígasögu er á hinn bóginn um lausan
enda að ræða. Til greina kæmi að bera Jón Ólafsson sökum,
minnið hefði brostið, en annar kostur og mun líklegri er fyrir
hendi. Af Laufæsingavígum segir svo í Guðmundarsögu
dýra:
Þá gekk út kona til kirkju ok hafði sveinbarn í faðmi sér, þat er
Hildibrandr var faðir at. Sighvatr bað þá höggva sveininn. Þá
hljóp Þorgrímr at ok mælti: „Hvárki skal hér vinna á börnum né
konum, þótt sjá sveinn verði oss öllum at bana.“ Síðan fóru þeir
Þorgrímr í brott. En Þórðr kom heim, þá er þeir váru í brottu,
ok sá, hvat þar var at sýst, ok mælti: „Ný slátr er hér nú at
höndla.“4
Eyrbyggja segir, að Snorri goði hafi tekið af lífi „Þorstein Gíslason ok
2 Gunnar, son hans.“ (154).
Hvs., 249 (JÓ). Eyrbyggja og Ævi Snorri goða segja Snorra hafa átt tvo
sonu og einn fósturson með sama nafni og sama viðurnefni að kalla (kausi
=köttur), og gegnir það nokkurri furðu. Sjá Eyrbyggja, 150-151 nmáls.
Það má láta sér til hugar koma, að dálæti Snorra á kettinum segi okkur
3 eitthvað um hann sjálfan. Á þetta hefur Ármann Jakobsson bent mér.
. Eaxdœla, 168.
4
Sturlunga saga I, 199.