Studia Islandica - 01.06.1993, Blaðsíða 253
251
ok lætr eigi af ferð sinni, fyrr en hann kom í Garðaríki, ok gekk
þar á mála ok var þar með Væringjum, ok þótti pllum Norð-
mgnnum mikils um hann vert, ok hyfðu hann í kærleikum með
sér. Ávallt er konungs ríki skal verja, er hann í leiðangri ok fær
gott orð af hreysti sinni ok hefir um sik mikla sveit manna. Þar
er Barði þrjá vetr í mikilli soemð frá konungi ok yllum Væringj-
um.1
Frásagnirnar eru í stórum dráttum samferða bæði að efni og
orðalagi. Óskipta athygli vekur, að Laxdæla segir: „hpfu
vér ekki heyrt frásagnir, at neinn Norðmaðr
hafi fyrr gengit á mála með Garðskonungi en
Bolli Bollason.“
í Heiðarvígasögu er frá því sagt, að bæði Þorsteinn Styrs-
son og Gestur Þórhallason hafi verið í Miklagarði, og tímatal
sagnanna vitnar um, að þeir hafi dvalist þar fyrr en Bolli.
Gestur gekk þar á mála, og sama er að segja um Barða. Ætla
má, að Barði hafi fallið í Miklagarði um 1025, en Bolli fari
þangað að sögn Laxdælu 1028 eða 1029 miðað við kristnitök-
una, en komi út 1030 miðað við lát Snorra goða. Tímatal Lax-
dælu er reikult, því að hún segir Bolla hafa verið „mjpk marga
vetr“ í Miklagarði.
Við ritskýringar er ekki annarra kosta völ en reiða sig á orð
höfundar, svo framarlega sem ekki verður sýnt fram á, að
hann fari með staðlausa stafi. Af ummælum Laxdælu verður
því varla dregin önnur ályktun en sú, að höfundur hennar hafi
ekki þekkt Heiðarvígasögu.
Fræðimenn hafa rekið augun í, að Heiðarvígasaga segir
Barða hafa komið í Garðaríki, sem er af samhenginu augljós
villa fyrir Miklagarð.2 Hvernig hefur sú villa skotið upp kollin-
um? í Laxdælu er Miklagarðskeisari nefndur Garðskonung-
ur,3 svo að til greina kemur, að höfundur Heiðarvígasögu hafi
1 Hvs., 325.
2
Sjá t.d. Sigfús Blöndal: Vœringjasaga, 319.
2 Garður = Mikligarður; sbr. og Hrafnkels sögu Freysgoða (111): „Hefi ek
(þ.e. Þorkell Þjóstarsson) verit útan sjau vetr okfarit út í Miklagarð, en em
handgenginn Garðskonunginum."