Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1891, Síða 8
8
III.
Annað ágrip af æfl Konráðs er í stúdentatali
Brinjólfs Bogasonar Benediktsens sislumanns í hand-
ritasafni landsbókasafnsins Nr. 394, 4to. Er það þar
skrifað með hendi Gísla Konráðssonar, föður Konráðs,
og mun vera að mestu samið af honum. Þetta æfi-
ágrip er reindar örstutt, enn þó er ímislegur fróð-
leikur i þvi — einkum um æsku Konráðs og ætt
hans — sem ekki er í sjálfsæfi hans og læt jeg því
prenta það hjer á eptir:
IV.
Úr stúdentatali Brinjólfs Bofíasonar Bene-
diktsens sísluinanns.
Ur Bessastaðaskóla 1831.
297. Konráð Gíslason:
Faöir: Gísli hreppst. Konráðsson, bjó á Langamíri
í Vallhólmi, Itra-Skörðugili og Húsabökkum
í Skagafirði, fór síðast vestur í Flatei; hann
var son Konráðs hreppstjóra og ferjumanns
á Völlum Gíslasonar Konráðssonar.
Moðir: firri kona Gísla, Evphemía Benediktsdóttir
Olafssonar frá Rauðhúsum í Eijafirði, laun-
dóttir hans með Sigríði, dóttur Jóns prófasts
á Hjaltastöðum, síðast í Grímstungum, af
Skaga ætt, Jónss nar, Sighvatsonar, Grettis-
samið af’ honum, og er það líka eígn sömu stofnunar. Það
er samhljóða hinu í aðalatriðunum, það sem það nær (til 1857),
enn miklu stittra. Þó hefur það sumt, sem ekki stendur í
því, sem hjer er prentað, t. d. að Konráð hafi verið álitinn
fæ.r um að taka hurtfararpróf úr Bessastaða skóla eftir 4 ára
dvöl þar, enn sótt um og fengið að vera eitt ár enn í skóla,
að hann haíi lagt stund á lögfræði eftir annað próf við ná-
skólann, til þess að verða betur fær um að skilja norræn lög,
og að hann haíi verið konungkjörinn þingmaður íirir Island á
ríkisþinginu danska árið 1848—1849.