Hlín - 01.01.1939, Blaðsíða 58
56
Hlín
Og er það að vonum, því allstaðar liggja hinir breiðu
og mjóu vegir samhliða. Og sýnir það glögt, að oss er
ætlað að vera á verði og láta „grön sía“.
Eitt af því besta, sem hinn nýi tími hefur fært okk-
ur, er óefað Útvarpið. — Það bregður upp fyrir manni
mörgum sjónarsviðum og brúar fjarlægðirnar. — Það
getur verið hið mesta menningartæki, ef vel er á hald-
ið. — Fyrir konurnar ætti Útvarpið einnig að geta ver-
ði góður tengiliður og sá vettvangur, sem þær gætu
mæst á víðsvegar úr strjálbýlinu, og rætt sín áhuga-
mál. — Fyrir nokkru var, svo sem kunnugt er, tekinn
upp á dagskrá Útvarpsins einn tími á viku fyrir hús-
mæður. Það var gott. Ýmsar góðar og þarfar leiðbein-
ingar hafa komið fram í þeim tímum. — Sumar ruku
í að opna glugga, aðrar að laga til í herbergjum, sumar
fóru í eldhúsið að matreiða, enn aðrar að hjúkra veik-
um, og kom það sjer vel í influensunni. — Alt var
þetta gott og nauðsynlegt. — En jeg veitti því eftir-
tekt, að aliar þær konur, sem erindi fluttu, höfðu opið
auga fyrir hinum ytri hag og velsæmi heimilisins, en
enginn mintist á grundvöllinn, er hin sanna hamingja
heimilisins byggist á. — Mjer finst, að húsmæðurnar
hefðu mátt verja, a. m. k. einum tíma, til að tala um
kristileg efni. Sjerstaklega þá hlið, sem að heimilunum
snýr, svo sem kristilegt uppeldi, og hvernig takast
mætti að hafa meiri áhrif á börnin í þá átt. — Einnig
hvernig færa mætti heimilin nær lifandi og starfandi
kristindómi.
Vegna þessara mála ætla jeg nú að rita „Hlín“
nokkrar línur. — Jeg veit, að hún vill ræða um kristi-
leg efni eins og önnur góð mál. — Jeg hef oft óskað
þess, að konur og kvenfjelög vildu láta kristindóms-
málin meira til sín taka en þær gera. — Þær ættu þó
að skilja það, að mikið er í húfi. — Þær eiga böm. —
Jeg held að hinn hreini, þróttmikli kristindómur sje