Hlín - 01.01.1939, Page 138
136
Hlín
síðan. — Fjelagið hefur nú um 80 fjelaga. — Það keypti
þegar í öndverðu 10 dagslátta land nálægt Varmahlíð,
liggur það beggja megin vegarins upp á Vatnsskarðið.
— Þar hafa þegar verið gróðursettar þúsundir trjáa.
Fjelagsmenn hafa lagt til mikið af gjafavinnu. —
Skógrækt Ríkisins sendi þangað kennara, er hafði
námsskeið í trjárækt og sóttu það nokkrir nemendur
og mörg skólabörn undir umsjón kennara.
Skólabörn hafa unnið í Varmahlíð í 3 vor og vorið í
vor einnig í Birkihlíð, en það er nýnefni á næsta bæ
fyrir framan Gil í Staðarhreppi. Þar búa ung hjón, þau
gáfu s. 1. ár landskák til skógræktar. — Kennari sveit-
arinnar, Guðrún Sveinsdóttir, fór í vor í stykkið með
skólabörnum sínum og plantaði þar talsverðu af trjám.
— Hún hefur líka unnið með börnunum í Varmahlíð.
Einu skógarleifarnar, sem til eru í Skagafirði, eru í
Hrolleifsdal upp af Sljettuhlíðinni. — Fyrir atbeina
skógræktarfjelagsins og skógræktarstjóra eru nú þess-
ar leifar loksins verndaðar með girðingu. — Annars er
ekki mikið um skógargróður í Skagafirði, svo að segja
eingöngu trjágarðurinn á Víðivöllum í Blönduhlíð, sem
Lilja Sigurðardóttir átti frumkvæði að, og svo Trjá-
í'æktarstöðin á Hólum í Hjaltadal.
Fjelagi.
Af Austurlandi er skrifað: — Sunnudaginn 16. júlí
s. 1. var aðalfundur Skógræktarfjelags Austurlands
haldinn á Ketilsstöðum á Völlum. — Það helsta sem
gerðist var það, að samþykt var að stjórnin mætti
semja við bóndann á Eyjólfsstöðum á Völlum um leigu
á 25 ha. af skóglendi til friðunar. — Landið þarna er
álitlegt, skógurinn þar hefur verið að færast í aukana
af sjálfsdáðum á seinni árum. — Svo hefur fjelagið í
hyggju að gera tilraunir með að planta barrtrjám í
þennan reit, í skjóli við birkið. — Á þennan hátt gera