Úrval - 01.05.1962, Blaðsíða 77
HUNDRAÐ ÁRA VIÐ FULLA HEILSU
85
margir kvillar og sjúkdómar efri
ára okkar eru ekki aðeins af völd-
um ellihrörnunar, heldur síð-
búnar afleiðingar rangra efna-
skipta, sem lengi hafa verið okk-
ur óþekkt. Þessir vísindamenn
halda því þess vegna fram, að
visindin ættu að ieitast við a.ð
finna ráð til þess að ráða bóí
á röngum efnaskiptum ungs og
miðaldra fólks.
Rannsóknir, sem grundvallast
á þessari skoðun, hafa nú þegar
leitt til athyglisverðra framfara
í baráttunni við slagæðakölkun,
(atherosclerosis), sem er algeng-
asta dánarorsök meðal miðaldra
og aldraðs fólks. Þessi slagæða-
kölkun var eitt sinn álitin vera
afleiðing ellihrörnunar. Líkskoð-
anir og athuganir í sambandi við
þær hafa síðan leitt i ljós slag-
æðakölkun hjá einstaklingum,
sem voru aðeins rúmlega tvítugir.
Þessar sannanir þess, að slag-
æðakölkun er efnaskiptasjúkdóm-
ur, sem hefst oft snemma ævinn-
ar, urðu til þess að hvetja menn
til þess að leita orsaka hennar,
og af þessu leiddu geysiviðtækar
rannsóknir, sem miðuðu að því
að rannsaka, hvaða hlutverki
efníð cholesterol gegnir, þegar
um hjartasjúkdóma er að ræða.
Nú eru margir læknar farnir að
gefa sjúklingum sínum ]yf eða
fyrirskipa þeim mataræði, sem
dregur úr cholesterol-innihaldi
líkamans. Það er ekki um það
eitt að ræða, að iæknar þessir
fyrirskipi sjúklingum, sem þjást
af slagæðakölkun á háu stigi,
slíka lyfjanotkun eða slíkt matar-
æði, heldur sem varúðarráðstöf-
un hverjum þeim, sem hefur
meira en eðlilegt cholesterol-
magn í líkama sínum.
Það á enn iangt i land, að
vonirnar rætist um a'ð takast
megi að framlengja góða heilsu
manna og starfsævi allt upp í
heila öld. Það er ekki líklegt, að
nein einstök uppgötvun vísinda-
mannanna hafi þetta í för með
sér, heldur miklu fremur sam-
safn lítilla sigra, sem eru hæg-
fara og oft ekki algerir. En þang-
að til svo verður, getum við ein-
staklingarnir gert margt til þess
að lengja vænlanlegt æviskeið
okkar og barna okkar. Hér á eft-
ir fyigja nokkrar slíkar uppá-
stungur frægra vísindamanna,
sem vinna að rannsóknum elli-
hrörnunar:
Forðizt ofát: Nýlegar rann-
sóknir á dánarorsök nokkurra
milljóna hftryggðra manna
sýndu, að menn, sem voru 20
pundum (amerískum) of þungir,
dóu yfirleitt 1% ári fyrr en þeir,
sem eðlilegan líkamsþunga höfðu.
35 punda umframþungi stytti
líklegt æviskeið um að minnsta