Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 24
20
festingunni, meðan óséð er, livort brevtingin getur öðlazt
gildi eða ekki. Hinsvegar getur slaðfesting þeirra ekki skipt
máli fyrir þá né aðra, þegar fullséð er, að frumvarpið nær
ekki staðfestingu nógu margra. En 26. gr. setur engin tak-
mörk fyrir því, Iiversu lengi málið getur dregizt, svo að vera
mætti, að frumvarpið öðlaðist gildi, liversu lengi sem stað-
festingin kynni að dragast, ef hún fæst á annað horð.
Þegar á 2. þingi bandalagsins 1921 voru samþykktar alls
14 hreytingar á sáttmála bandalagsins, á 4., 6., 12., 13., 15.,
16., og 26. gr. Breytingarnar á öllum greinunum, nema 16. og
26. gr., liafa fengið staðfestingu nægilega margra meðlima til
að öðlast gildi. Þar á móti liafa breytingarnar á 16. og 26. gr.
enn þá ekki öðlazt gildi.
Samkvæmt frumvarpinu um breytingar á 26. gr., er berum
orðum sagt, að þing bandalagsins þurfi að samþykkja þær
með % atkvæða, og verða þá þeir, er ekki greiða atkvæði,
livorki taldir með né móti. Meðal þeirra, sem atkvæði greiða
með, þurfa ennfremur að vera allir þeir, sem fulltrúa eiga i
ráði handalagsins. Ennfremur þarf staðfestingar allra með-
limanna, sem fulltrúa áttu í ráðinu, þegar frumvarpið var
samþykkt, og meiri liluta allra meðlima handalagsins á
þeim degi, er breytingin öðlast gildi. Þetta siðasta er að vísu
ekki sagt berum orðum, en það er skilið svo og er í samræmi
við þann skilning, sem nú er lagður í 1. málsgr. 26. gr.
Það er enn nýtt ákvæði, að staðfesting nægilega margra
meðlima bandalagsins samkvæmt framansögðu þarf að vera
fengin áður en liðnir eru 22 mánuðir frá því að þingið af-
greiddi frumvarpið. Annarskostar er það ónýtt. Ef gera skal
hreytingar af nýju, verður því að hvrja á nýjan leik eftir
þenna tíma.
Þá segir í frumvarpinu, að framkvæmdarstjóri handalags-
ins eigi að tilkynna meðlimum þess, þegar breyting sé gengin
í gildi. Það liefur annars verið venja, að hirta í Journal
Offical jafnóðum þær staðfestingar, sem fengizt liafa á breyt-
ingar þær, sem að framan greinir.
Loks segir i frumvarpinu, að þeir meðlimir bandalagsins,
sem ekki liafa staðfest breytingar á sáttmálanum innan 22
mánaða, geti tilkynnt framkvæmdarstjóra bandalagsins inn-
an árs þar frá, að þeir synji um staðfestinguna, og hætti þá
að vera i bandalaginu. Þetta lilýtur að merkja það, að þeir
verði að halda áfram að vera meðlimir handalagsins eftir sem
áður, ef tilkvnning er ekki komin frá þeim til framkvæmdar-