Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 98
94
að lutandi, eða eftir ályktun sjálfs sín, svo og nefndir til rann-
sóknar ýmsum efnum eða úrlausnar, liæði samkvæmt friðar-
samningunum 1919 og friðarsamningunum við Tyrkland í
Lausanne 1923 o. fl.
li. Aðgerðir ráðsins eftir 2. mgr. 16. gr. sbr. 17. gr. sm.
varða og friðarmálin, þvi að þær miða til þess að bæla niður
þegar byrjaða styrjöld.
2. Ráðið hefur á hendi margskonar störf framkvæmdar-
eðlis, bæði samkvæmt sáttmálanum og öðrum heimildum.
a. Ráðið gerir sanminga um mandötin, að svo miklu leyti
sem þeir liafa ekki verið áður gerðir með samkomulagi milli
félaga Þjóðabandalagsins, og befur eftirlit með stjórn man-
datanna, 7. og 9. mgr. 22. gr. sm.
b. Eftir 45. gr. Vers. samninganna skal Saar-dalurinn vera
fyrst um sinn til 1935 undir vfirstjórn Þjóðabandalagsins.
Ráðið nefnir 5 manna nefnd til að stjórna liéraði þessu, einn
franskan, annan þýzkan og þrjá annara þjóða menn. Ibúar
liéraðsins balda þýzkum þegnrétti, en kolanámurnar reka
Frakkar og liafa arð þeirra upp í bernaðarskaðabæturnar,
sem Þýzkaland átti að greiða Frakklandi eftir stríðið. Árið
1935 skal fara fram atkvæðagreiðsla um það, bvort íbúarnir
vilji lieldur, að béraðið sameinist aftur Þýzkalandi, eða bverfi
til Frakklands, eða baldi áfram að vera undir Þjóðabanda-
laginu. Stjórnarnefndin skal árlega senda ráðinu skýrslu um
stjórn sína á liéraðinu og hagi þess. Ráðið og stjórnarnefndin
eiga að vera óblutdrægir aðiljar, er jafni deilur milli Frakk-
lands og Þýzkalands út af béraðinu. Ef liéraðsbúar kjósa að
liverfa aftur til Þýzkalands, á ráðið að úrskurða ýms efni
milli landa þessara í sambandi við ])að, meðal annars um af-
hendingu kola úr námum þar til Frakklands.
c. Samkvæmt Vers. samningunum var borgin Danzig gerð
að friborg svo nefndri. Þjóðabandalagið ábyrgist stjórnfrelsi
borgarinnar. Ráðið nefnir lienni yfirborgarstjóra (High
commissioner), sem gefur ráðinu árlega skýrslu sína um
stjórn borgarinnar og bagi hennar. Pólland fer með utanrík-
ismál bennar undir eftirliti ráðsins, sem og getur bannað
borginni liverskonar samningagerðir við önnur ríki, ef þær
þykja óheppilegar. Deilumál milli Póllands og borgarinnar
úrskurðar ráðið. Loks skiiiar ráðið formann nefndar, sem
fer með liafnarmál borgarinnar.
d. Ráðið befur ýmiskonar störf með höndum, er varða fjár-