Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 116
112
arts) og sérfræðinganefndir ýmsar, settar til að athuga ýms
mál, og hætta þvi störfum, er verkefninu er lokið. Loks eru
sérnefndir í ýmsum löndum, sem starfa að sömu efnum inn-
an lands og starfa i sambandi við stofnunina i París. Þessar
nefndir vinna liver eftir síns lands háttum. Loks er cilþjóða
safnaskrifstofan (office international des musées), sem gefur
út tímaritið Museion, í samhandi við neíndina.
D. Ráðgjafarnefnd til verndar börnum og unglingum (com-
mission consultative pour la protection de l’enfance et de la
jeunesse). Nefnd þessa skipa 12 menn af ýmsum þjóðernum,
þar á meðal einn frá Bandaríkjunum, nefndir af stjórnum
þeirra ríkja, er ráðið hefur boðið að nefna fulltrúa í nefnd-
ina. Hún greinist í tvær undirnefndir: 1. Kvenna- og barna-
sölunefnd (comité de la traite des femmes et des enfants) og
barnaverndarnefnd (comité de la protection de renfance).
Ýmsar góðgerðastofnanir velja og aukamenn i nefndir þessar.
Nefndir þessar eru settar með liliðsjón af c-lið 23. gr. sátt-
málans. Nefndirnar eiga að liafa eftirlit með því, hvernig
milliríkj asamningar um þessi efni eru lialdnir, og að aðstoða
ráðið i þessum málum. Þær halda venjulega fundi einu sinni
á ári eftir kvaðningu framkvæmdarstjóra bandalagsins. Afl
atkvæða ræður á nefndarfundum.
E. Ópíum-nefndin (commission de l’opium). Ráðið hefur
sett þessa nefnd vegna fyrirmælá c-liðar 23. gr. sm., og er
hún skipuð 13 mönnum, nefndum af stjórnum þeirra rikja,
sem ráðið liefur snúið sér til i því skyni. Eru það aðallega
menn frá löndum, þar sem ópíum er framleitt og unnið. Auk
þess liafa nokkrir aukamenn verið settir vegna sérþekkingar
sinnar til að starfa með nefndinni. Hún heldur fund einu
sinni á ári í Genf. Afl atkvæða ræður úrslitum.
F. Önnur ópíumnefnd (comité central permanent de
l’opium) er skipuð af ráðinu samkvæmt ákvæðum ópíum-
samninganna i Genf 19. febr. 1925. Hana skipa 8 menn til 5
ára i senn. Hún safnar skýrslnm frá aðiljum þeim, sem við
ópíum-samninginn eru bundnir, um inn- og útflutning ópí-
ums og getur birt útdrátt úr þeim.
G. Eftirlitsnefnd fjármála Þjóðabandalagsins (commission
de contróle). Þingið nefnir 5 menn í nefnd þessa, og 2 til
vara, til 3 ára, alla frá löndum meðlima handalagsins, er ekki
skipa sæti i ráðinu. Einn nefndarmanna að minnsta kosti skal
vera reyndur fjármálamaður. Nefndin liefur gæzlu á fjármál-
um bandalagsins og' gefur ráði og' þingi leiðheiningar í þeim