Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 130
126
7. Eftir 23. gr. skplskr. skal dómurinn liafa samkomu einu
sinni á ári, er liefjast á venjulega 15. júnímánaðar og standa
svo lengi sem þörf krefur. Auka-samkomur getur forseti á-
kveðið eftir þörfum. í breytingunum frá 1929 er ákveðið, að
dómurinn skuli sitja allt árið, að undanskildum tilskildum
leyfum.
8. Dómurinn setur sér sjálfur starfsreglur innan takmarka
skipulagsskrárinnar. Reglugerð hans er frá 24. marz 1922.
Dómurinn kýs sér og forseta og varaforseta. Venjulega skipa
allir dómendur dóminn, en 9 dómendur hið fæsta mega vera
í dómi. Ef ekki næst til svo margra, taka varadómarar sæti.
Þeir eru kjörnir með sama liætti sem reglulegir dómendur.
Auk fastra dómenda, geta aðiljar livor um sig' skipað einn
dómara til að taka þátt i meðferð máls, ef þeir eiga ekki
mann í dóminum fyrir. Ef fleiri en einn aðili er öðrum meg-
in, fá þeir báðir eða allir að eins að velja einn dómara, 31.
gr. skplskr. Þessi regla virðist nokkuð varhugaverð og ekki í
samræmi við höfuðregluna um sjálfstæði dómaranna. A-
stæðan fyrir ákvæði þessu er sjálfsagt það, að dómendur úr
landi aðilja muni draga fram aðalatriðin i málstað umbjóð-
anda síns betur en málflytjendurnir.
Undantekningar frá almennu reglunni um skipun dómsins
eru:
a. I mnnumálum (sjá 15. gr. V. A.) dæma 5 dómendur,
kvaddir til 3. livert ár, 26. gr. skplskr.
h. í málum varðandi samgöngur (einkum þau, er í XII.
kafla Vers. samn. greinir) dæma einnig 5 dómendur, til-
nefndir sem fyrr segir, 27. gr. skplskr.
c. Loks skal dómurinn árlega skipa 3 manna dóm til að
afgreiða mál skjótlega, ef aðiljar óska þess, 29. gr. sklskr.
Þessi skipun mun lielzt verða höfð, ef aðiljar telja málið
hvorki stefnumál né heldur mikils virði.
9. Dómurinn hefur sérstaka skrifstofu. Fvrir henni stendur
skrifstofustjóri (greffier) með dómaralaunum ogsömu hlunn-
indum sem dómarar. Undir honum starfar vara-skrifstofu-
stjóri (greffier adjoint). Dómurinn velur skrifstofustjóra til
7 ára. Stýrir hann skrifstofunni með forseta. Starfsmenn
skrifstofunnar njóta samsvarandi hlunninda sem starfsmenn
skrifstofu Þjóðabandalagsins i Svisslandi. Skipar dómurinn
þá eftir tillögum skrifstofustjóra. Skrifstofan gefur út þessi
rit frá dóminum:
Dómasafn (Recueil des arréts). Safn af álitsgerðum dóms-