Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 112
108
á fjármálum borgarinnar (fidéicommissaire pour l’emprunt
municipal 1925 et 1927 de la ville libre de Danzig).
6. Enn fékk Estland lán 1927 fyrir atbeina Þjóðabandalags-
ins. Þess vegna hefur ráðið einnig sett þar trúnaðarmann til
gæzlu á fjármálum landsins (fidéicommissairse pour l’em-
prunt Estonien).
2. Þjóðhagscleild er skipuð 15 mönnum af ýmsum þjóðern-
um, sérfræðingum á sviði þjóðhagsfræðinnar. Ráðið nefnir þá
til þriggja ára í senn. Þeir eiga og að skoða sig eingöngu starfs-
menn bandalagsins. Þeir eru ekki endurkjörnir, beldur skuln
koma i þeirra stað jnenn af öðrum þjóðernum, en sjálfir verða
þeir bréffélagar deildarinnar, sem vera skulu ráðinu til aðstoð-
ar um þjóðhagsmál, einkum um skijjti ríkja á því sviði. Deild-
in kemur saman þrisvar til fjórum sinnum á ári í Genf, og
getur tekið til meðferðar livert mál, sem henni þvkir hlýða,
innan síns verkalirings. Hún gelur og sett undirnefndir eftir
þörfum til rannsóknar einstökum málum, en slíkar nefndir
eru ekki fastar. Nefndir hafa verið settar til að atliuga toll-
mál og reglur um inn- og útflutning dýra til varnar við út-
breiðslu dýrasjúkdóma og' til að athuga fjárhag' landbúnað-
arins. Af verki þessarar deildar er kominn samningur um
tollskrár 3. nóv. 1923 og um innflutning húða 11. júlí 1926.
3. Til „teknisku“ stofnunarinnar telst ráðgjafarnefnd (comi-
té consultatif), sem skipuð er mönnum frá 25 ríkjum, bæði
meðal félaga bandalagsins og annara. Eru það sérfræðingar
í iðjumálum og iðnaðar, verzlun, landbúnaði, fjármálum,
verkamálum, samvinnufélagsskap o. s. frv. Skipar ráðið þessa
nefnd. Nefndarmenn eru milli 50 og 60 talsins. Ráðið ákveð-
ur fundi nefndar þessarar eftir tillögu formanns hennar og
framkvæmdarstjóra bandalagsins.
B. Samgöngumálastofnunin (organisation des communica-
tions et du transit). Hún er stofnuð með bliðsjón af e-lið 23.
gr. sm. til þess að greiða fyrir samvinnu milli rikja um sam-
göngur og aðstoða þing og ráð á því sviði. Starfsdeildir henn-
ar eru tvær: 1. Alþjóða samgöngumálastefna og 2. „Teknisk'‘
ráðgjafarn efnd.
Auk félaga Þjóðabandalagsins, liafa tekið þátt í stofnun
þessari ýmsir aðiljar utan bandalagsins, svo sem Bandaríkin,
Sovjet-Rússland, Tvrkland og' Mexikó, áður en þessi tvö sið-
astnefndu ríki gengu í bandalagið.
1. Alþjóðasamgöngumálastefnan (conférence générale des
communications et du transit) er skipuð fulltrúum, sem taka