Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 213
209
hann. Nú er úrskurSi efSa dómi ekki hlýt't, og skal ráðið þá gera
tillögur um það, hverjum ráSum beita skuli til aS tryggja fullnustu
hans.
14. gr.
RáSinu er faliS aS gera frumvarp um fastan milliríkjadómstól og
leggja það fyrir félaga Þjóðabandalagsins. Dómur þessi tekur til með-
ferðar og dæmir hverskonar ágreining þjóðréttareSlis, sem aðiljar
leggja til hans. Hann skal og láta í té álit sitt um hverskonar ágrein-
ingsefni, sem þing bandalagsins eða ráð leggur fyrir hann.
15. gr.
1. Nú rís milli félaga bandalagsins ágreiningur, sem líklegur er til
þess að valda friðslitum, og hann skal ekki sæta úrlausn gjörðar eða
dómstóls samkvæmt 13. gr., og undirgangast þeir þá að leggja málið
undir ráðið. í þessu er nóg, að annar aðilja tilkynni fram-
kvæmdarstjóra Þjóðabandalagsins ágreininginn, enda skal fram-
kvæmdarstjóri þá gera ráðstafanir til þess, að málið verði rannsakað
og íhugað fullkomlega.
2. Tafarlaust skulu aðiljar láta framkvæmdarstjóra í té greinar-
gjörð sina um máliS, og sé þar lýsing á málavöxtum, ásamt skjölum
málsins. RáðiS getur látið birta þessi plögg þegar í stað.
3. Ráðið skal reyna að leysa ágreininginn. Ef þvi heppnast það,
þá birtir það, með þeim liætti, er það telur henta, greinargjörð um
málavöxtu, ásamt nauðsynlegum skýringum, og skilmála um úrlausn
málsins.
4. Nú tekst ráSinu ekki að jafna ágreininginn, og semur það þá
og birtir skýrslu, cr það hefur samþykkt í einu hljóði eða með meiri
hluta atkvæða, um málavöxtu, ásamt úrlausn þeirri á málinu, sem
það mælir með og telur sanngjarnasta og hentasta eftir ástæðum.
5. Sérhverjum félaga bandalagsins, sem fulltrúa á í ráðinu, er og
jafnrétt að gera skýrslu um málavöxtu og tillögur sínar um ágrein-
inginm
6. Ef skýrsla ráðsins hefir verið samþykkt i einu hljóði — en hér
eru atkvæði fulltrúa aðilja ekki talin með — þá skuhlbinda féiagar
Þjóðabandalagsins sig til þess að liefja ekki ófrið á hendur þeim máls-
aðilja nokkrum, sem fellst á tillögur þær, er i skýrslunni felast.
7. Nú heppnast ráðinu ekki að fá samþykki allra fulltrúa, að und-
anteknum fulltrúum aðilja, til skýrslu sinnar, og áskilja þá félagar
ÞjóSabandalagsins sér rétt til þess að fara svo að, sem þeir telja nauð-
synlegt til þess að halda uppi lögum og réttlæti.
8. Nú staðhæfir aðili, að ágreiningsefni sé svo vaxið, að hann eigi’
að þjóðarétti úrlausn þess samkvæmt landslögum, og kveður þá ráðið
á um það atriði í skýrslu sinni, og gerir þá, ef það fellst á skoSun
aðilja, enga tillögu um úrlausn málsins.
9. Þegar svo stendur á, sem í grein þessari segir, getur ráðið
jafnan lagt ágreininginn undir þingið. Einnig skal þingið taka á-
gre'ning til meðferðar, ef aðili krefst þess innan 14 daga frá þvi, er
málið kom fyrir ráðið.
10. Nú er mál lagt til þingsins, og skulu þá gilda fyrirmæli þess-
arar grcinar og 12. gr. um framkvæmdir og vald ráðsins með sama
27